Bætur fyrir útsýni yfir hafið og Snæfellsjökul Garðar Örn Úlfarsson skrifar 24. febrúar 2018 07:30 Mýrargata 26 sést hér á miðri mynd austan við Alliance húsið. Nýbyggingar koma milli húsanna tveggja og norður og vestur fyrir Alliance húsið. Mynd/Kynningarefni Reykjavíkurborgar „
Þessar breytingar ganga þvert á þær forsendur sem urðu til þess að við völdum að kaupa íbúðina fyrir tveimur árum, þar sem umhverfið, lífsgæðin, birta íbúðarinnar og útsýnið til Snæfellsjökuls vógu þyngst,“ segir í mótmælabréfi vegna fyrirhugaðrar breytingar á skipulagi Alliance-reitsins við Reykjavíkurhöfn. Fyrir liggur tillaga um að breyta skipulagi sem gert var fyrir Alliance-reitinn árið 2013. Leyfðar verða fjórar hæðir í stað þriggja við hlið Mýrargötu 26 og byggingarmagn ofanjarðar á lóðinni er meira en tvöfaldað; verður 6.700 fermetrar í stað 3.300 fermetra. Bílakjallari minnkar úr 1.500 í 1.400 fermetra. Þá er skilgreiningu reitsins breytt þannig að gert verði ráð fyrir hótelstarfsemi. Íbúar við Mýrargötu 26, og þá þeir sem eru vestan megin í húsinu, eru áberandi í hópi andstæðinga breytingarinnar. Er fyrrnefnd tilvitnun frá eigendum íbúðar þar, þeim Árna Möller og Signýju Pálsdóttur.„Um það bil níu metrum frá stofu- og svefnherbergisgluggum okkar munu koma íbúðir með tilheyrandi gluggum og svölum. Þetta skerðir lífsgæði okkar mjög mikið og friðhelgi einkalífsins með öllu horfin nema dregið sé fyrir glugga,“ segir einnig í bréfi Árna og Signýjar. Þau áskilja sér rétt til að krefjast bóta af borginni. Helga Bragadóttir og Jóhann Sigurjónsson segjast í sínu bréfi hafa keypt íbúð í húsinu í ágúst 2014 eftir að hafa kynnt sér nýtt aðalskipulag og gildandi deiliskipulagsáætlun. „Vegna einstaks útsýnis frá íbúð 509 og með tilliti til nýrra deiliskipulagsákvæða í næsta nágrenni var ákveðið að verja umtalsverðum fjármunum umfram þá sem greiða þurfti fyrir samskonar íbúðir á hæðum neðar, enda tryggt að ekki yrði byggt vestan íbúða á 5. hæð, sem eru hæðinni hærri en friðað Alliance hús,“ rekja Helga og Jóhann sínar aðstæður. Segja þau verðgildi eignar sinnar munu skerðast og þau áskilja sér einnig rétt til að sækja bætur. Guðmundur Þorsteinsson bendir í sínu bréfi á að nýtingarhlutfall Alliance-lóðarinnar muni aukast um ríflega 77 prósent. „Það er því ljóst að um meiriháttar breytingar er að ræða á byggingarmagni á umræddum reit og ljóst að slíkt kallar á verulegan forsendubrest þeirra aðila sem fjárfestu í dýrum íbúðum að Mýrargötu 26,“ skrifar hann. Í bókun meirihlutaflokkanna í borgarstjórn frá í október 2017 er bent á að byggingarmagnið á reitnum verði með þessari tillögu umtalsvert minna en samkvæmt skipulagi sem hafi verið í gildi er borgin keypti reitinn á árinu 2012. Skipulagsstofnun gagnrýnir framgöngu borgarinnar. „Gögn eru misvísandi varðandi hæðafjölda nýbyggingar milli Alliance hússins og Mýrargötu 26 og viðbrögð við athugasemdum er ófullnægjandi,“ segir stofnunin í bréfi. Helstu athugasemdir sem borist hafi lúti að umtalsverðri aukningu byggingarmagns og hæð nýbygginga. Einnig séu áhyggjur af hóteluppbyggingu og fækkun bílastæða á lóð. Þá segir Skipulagsstofnun að í greinargerð og svörum borgarinnar við athugasemdum komi fram að meginmarkmið með breytingunni sé að styrkja stöðu Alliance-hússins og skapa stað með sterkan heildarsvip. „Telur Skipulagsstofnun að rökstyðja þurfi betur hvernig þessi útfærsla styrkir stöðu Alliance hússins og uppfyllir önnur markmið breytingarinnar,“ segir stofnunin og bendir á að Minjastofnun telji áformin hafa neikvæð áhrif á Alliance-húsið. Þá telur Skipulagsstofnun að svör borgarinnar við athugasemdum varðandi nýbygginguna milli Alliance-hússins og Mýrargötu 26 séu ekki rétt hvað varðar hæðafjölda. Húsið sé fjórar hæðir en ekki þrjár eins og komi fram í uppdrætti. „Í svörum við athugasemdum er ýmist sagt að húsið sé þrjár hæðir eða þrjár hæðir séð frá Mýrargötu og aðeins sé verið að breyta formi þess.“ Eigendur fasteigna við Grandagarð 1-13 gagnrýna áformin harðlega af ýmsum ástæðum: „Leggjumst við allir sem einn gegn þeim tillögum sem fyrir liggja um uppbyggingu Alliance reitsins.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Svona var Pallborðið með Höllu Hrund, Katrínu og Baldri Innlent Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Innlent Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Innlent Svandís boðar til blaðamannafundar Innlent Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Innlent Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Innlent „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Heyrist meira af kjaftæði um lyf en vísindalegum staðreyndum Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Fjöldi verkfallsboðanna á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Framkvæmdanefnd fyrir Grindavík sett á laggirnar Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg Skipar framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Svona var Pallborðið með Höllu Hrund, Katrínu og Baldri Svandís boðar til blaðamannafundar Heyrist meira af kjaftæði um lyf en vísindalegum staðreyndum Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Sjá meira