Enski boltinn

Pep: Stærri bikarar í boði

Dagur Lárusson skrifar
Pep Guardiola með bikarinn.
Pep Guardiola með bikarinn. vísir/getty
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hefur tileinkað sigri síns liðs í deildarbikarnum til stuðningsmanna liðsins.

Manchester City vann Arsenal 3-0 en þetta var fyrsti bikar Pep Guardiola með Manchester City.

„Þessi bikar er tileinkaður Manchester City og stuðnigsmönnunum, hann er ekki fyrir mig. Við erum ánægðir en það eru margir stærri bikarar ennþá í boði.“

Pep var spurður út í það hvers vegna hann fór ekki upp með liðinu til þess að taka á móti bikarnum.

„Það er betra að sjá bikarinn fara á loft frá vellinum, betra heldur en þegar maður er þarna uppi.“


Tengdar fréttir

Wenger: Þetta var rangstaða

Arsene Wenger var ósáttur eftir tap sinna manna gegn Manchester City í úrslitum deildarbikarsins í dag en City var sterkari aðilinn allan leikinn.

Aguero: Þetta var ekki brot

Sergio Aguero, leikmaður Manchester City, var að vonum ánægður eftir sigur liðsins gegn Arsenal í deildarbikarnum í dag en Aguero skoraði fyrsta mark City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×