Enski boltinn

Jóhann Berg leikmaður mánaðarins

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Jóhann Berg með verðlaunin
Jóhann Berg með verðlaunin mynd/burnley
Íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson er leikmaður mánaðarins hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Burnley í janúarmánuði.

Útnefningin var í höndum stuðningsmanna Burnley, en Jóhann Berg vann kostninguna og fékk verðlaunin í annað skiptið á tímabilinu. Hann var einnig kosinn leikmaður nóvembermánaðar.

„Það er mikill heiður að vinna þessi verðlaun og finna að stuðningsmennirnir kunna að meta mann,“ sagði Jóhann Berg við heimasíðu Burnley.

Jóhann Berg skoraði annað tveggja marka Burnley í janúar, jöfnunarmark gegn Liverpool á Turf Moor. Hann verður væntanlega í eldlínunni á laugardaginn í Íslendingaslag Burnley og Everton á Turf Moor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×