Körfubolti

NBA-stjarna myndaður við að borða hamborgara rétt fyrir leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Joel Embiid.
Joel Embiid. Vísir/Getty
Joel Embiid, miðherji Philadelphia 76ers, er verðandi risastjarna í NBA-deildinni enda lykilmaður í ungu liði sem er líklegt til afreka í deildinni á næstu árum.

Þessi 23 ára og 213 sentímetra strákur komst fyrst mest í fréttirnar fyrir að spila ekki en svo fyrir að sýna takta sem höfðu varla sést í deildinni síðan að Hakeem Olajuwon var upp á sitt besta. Nú er hann hinsvegar að koma sér í fréttirnar fyrir allt annað en fagmannlegan undirbúning fyrir leik í NBA-deildinni.

Embiid kom snemma inn í deildina en missti af tveimur fyrstu tímabilum sínum vegna meiðsla. Hann var valinn sumarið 2014 en lék ekki sinn fyrsta leik fyrr en í október 2016.

Þegar Embiid var kominn inn á völlinn fór ekki á milli mála að þar er á ferðinni einstakur leikmaður sem hefur alla burði til að verða einn sá besti. Mikið hefur verið látið með mottó Embiid „trust the Process" sem vísar til að þegar hefur tekið sinn tíma fyrir hann að komast inn á völlinn.

Embiid var með 20,2 stig, 7,8 fráköst og 2,5 varin skot að meðaltali á 25,4 mínútum í í leik í fyrra og í vetur hefur hann spilað aðeins meira og hækkað meðaltöl sín upp í 23,9 stig, 11,2 fráköst og 3,1 stoðsendingu í leik.

Embiid hefur verið að gera mjög góða hluti en fyrir leik á móti Washington Wizards á dögunum þá var hann myndaður við það að borða hamborgara á hliðarlínunni rétt á meðan einn sjúkraþjálfari Philadelphia 76ers var að nudda á hann fæturnar.  Þarna voru aðeins 90 mínútur í leik.

ESPN náði þessu á myndband eins og sést hér fyrir neðan.





Næringarfræðingar eru allt annað en hrifnir af þessu matarræði stuttu fyrir leik og fleiri hafa gagnrýnt Joel Embiid fyrir hugsunarleysið. Hann gat þá allavega borðað borgarann inn í klefa segja sumir.

Það er svo sem ekki hægt að kvarta mikið yfir frammistöðu hans í leiknum því Joel Embiid var með 25 stig og 10 fráköst.

Philadelphia 76ers tapaði hinsvegar leiknum með fimmtán stigum eftir að hafa unnið sjö leiki í röð á undan og Embiid hitti aðeins úr 9 af 20 skotum í leiknum. Þessi 45 prósent skotnýting hans var sú versta hjá honum í fimm leikjum og ein sú versta á leiktíðinni.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×