Innlent

Lögregla lýsir eftir Breka

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Breki Gunnarsson.
Breki Gunnarsson. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Breka Gunnarssyni, 26 ára. Hann er 176 sm á hæð, dökkhærður með axlarsítt hár og brún augu.

Talið er að Breki sé klæddur brúnum leðurjakka, grænum buxum og gulum Timberland-skóm. Síðast er vitað um ferðir Breka í Hafnarfirði um kvöldmatarleytið í gærkvöldi.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Breka, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×