Giroud komst á blað í þægilegum bikarsigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Giroud meiddist á höfði í kvöld og spilaði með sárabindi út leikinn.
Giroud meiddist á höfði í kvöld og spilaði með sárabindi út leikinn. Vísir/getty
Chelsea lenti í engum vandræðum með B-deildarlið Hull á heimavelli í 16-liða úrslitum enska bikarsins, en leikurinn var afar auðveldur fyrir Englandsmeistarana.

Eftir rúma eina mínútu kom Brasilíumaðurinn Willian Chelsea yfir og á 27. mínútu skoraði Pedro annað mark Chelsea.

Fyrir hlé skoraði Willian annað mark sitt og Oliver Giroud gerði fjórða mark Chelsea. Þetta var fyrsta mark Giroud fyrir Chelsea frá því hann gekk í raðir liðsins frá Arsenal.

Staðan var 4-0 í hálfleik, en í síðari hálfleik urðu mörkin ekki fleiri. Þægilegt fyrir Chelsea sem er ásamt Leicester komið í átta liða úrslitin.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira