Innlent

Biskup um umskurðarfrumvarp: Hætt við að Gyðingdómur og Islam verði gerð að glæpsamlegum trúarbrögðum

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Biskup hefur skilað umsögn um umdeilt frumvarp um bann við umskurði.
Biskup hefur skilað umsögn um umdeilt frumvarp um bann við umskurði. Vísir/Vilhelm
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, telur að með frumvarpi sem banni umskurð drengja sé hætta á að Gyðingdómur og Islam verði gerð að glæpsamlegum trúarbrögðum og að einstaklingar sem aðhyllast þau verði bannaðir hér á landi eða óvelkomnir.

Þetta kemur fram í umsögn biskups við frumvarpinu sem hún skilaði inn í gær.

„Allar slíkar öfgar skulum við forðast,“ segir biskup.

Agnes segist þó taka undir það markmið frumvarpsins að stuðla að vernd gegn líkamsárás sem veldur tjóni á líkama eða heilsu barna.

„Í greinargerðinni sem fylgir frumvarpinu er vísað til þess að Ísland hafi verið ein þeirra þjóða sem lögðu til ályktun um bann við limlestingum á kynfærum kvenna sem samþykkt var á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 2012. Biskup Íslands er stolt af þátttöku Íslands í þeirri baráttu og fagnar þeim árangri sem þar hefur náðst.“

Umskurður ekki sérstaklega ræddur innan þjóðkirkjunnar

Þá bendir biskup á að umskurður drengja sé víða um heim algeng aðgerð en að ekki hafi sérstaklega verið rætt um hana innan þjóðkirkjunnar, enda ekki kristinn siður.

„Biskup og þjóðkirkjan bera almennt virðingu fyrir siðum og venjum annarra trú- og lífsskoðunarfélaga. Hins vegar er það skoðun biskups Íslands að sjálfsagt sé að hlusta á bæði rök og reynslu þeirra sem þekkja til og fá fram umræðu um málið,” segir í umsögninni.

„Biskup telur þó varasamt að frumkvæði að þeirri umræðu sé í formi frumvarps til breytinga á hegningarlögum þar sem lagt er til að viðurlög við umskurði drengja verði allt að sex ára fangelsi.“

Þá er bent á að bann við umskurn án öruggra aðstæðna mætti líka ræða og hvort hægt væri að tryggja þá heilbrigðisþjónustu í íslensku heilbrigðiskerfi sem mætir þörfum hinna ólíku trúar- og menningarheima.

Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, sem hefur sætt harðri gagnrýni. Umboðsmenn barna á öllum Norðurlöndunum undirrituðu árið 2013 viljayfirlýsingu þess efnis að banna ætti umskurð barna og er hliðstætt frumvarp til skoðunar í Danmörku.

Það eru ekki einungis innlendir trúarleiðtogar sem gagnrýnt hafa frumvarpið en þýski kardinálinn Richard Marx hefur sagt það árás á trúfrelsið og þá hafa trúarleiðtogar gyðinga í Noregi og Danmörku einnig gagnrýnt það. Þeir benda á að tiltölulega fáir gyðingar séu á Íslandi og fyrir vikið sé eina leiðin að beita alþjóðlegum þrýstingi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×