Sport

Sigurvegarinn með nýjan hest

Telma Tómasson skrifar
Lið Gangmyllunnar.
Lið Gangmyllunnar. Stöð 2 Sport
Sigurvegari Meistaradeildar Cintamani í hestaíþróttum teflir fram nýjum hesti í ár og verður spennandi að sjá hvernig honum gengur í fyrstu keppni vetrarins í hestaíþróttum, fjórgangi, sem fram fer í Samskipahöllinni í Kópavogi í kvöld.

Bergur Jónsson fer fyrir liði Gangmyllunnar og er það áttunda og síðasta liðið sem við kynnum til leiks í meðfylgjandi myndbandi.

Bergur sigraði Meistaradeild Cintamani með minnsta mögulega mun í fyrra og réðust úrslitin á lokametrunum. Stólpagæðingurinn Katla frá Ketilsstöðum átti stóran þátt í velgengni Bergs, en hann mætir ekki með hana í ár.

„Staðan á mér persónulega er að hryssan sem var mitt aðalhross í fyrra er komin í folaldseign og er ekkert sjálfgefið að fylla upp í það skarð. Við sjáum hvað setur,“ segir Bergur íbyggin.

Hann segir að það sér mikill áhugi á Meistaradeildinni og stemningin fyrir fyrsta mót mikil.

„Skemmtilegast við þessa Meistaradeild er að þetta er stærsti viðburður Íslandshestaheimsins á hverju ári og meira fylgst með henni en jafnvel Landsmóti og Heimsmeistaramóti. Þetta er gríðarlega erfið keppni, enda þarna samankomnir flestir af bestu knöpum og hestum landsins, allir tjalda til því besta sem til er í það og það skiptið.“

Eins og fyrr segir er fyrsta keppnisgrein í Meistaradeild Cintamani fjórgangur og fer mótið fram í kvöld, 1. febrúar, í Samskipahöllinni í Kópavogi.

Keppnin er sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og unnt er að tryggja sér áskrift á 365.is/bestasaetid. Einnig er unnt að fylgjast með á netinu á oz.com/meistaradeildin.


Tengdar fréttir

Verður spennandi að sjá hvaða stjörnur koma fram

Lífland er í fyrsta sinn með lið í Meistaradeildinni en knaparnir eru þó öllu vanir. Innanborðs eru mikið reyndir keppnisknapar, sem mæta bæði með reynda hesta og hugsanlega nýjar stjörnur. Keppnin framundan er þó óskrifað blað að vanda.

„Við bætum hvort annað upp“

"Við erum mjög metnaðarfull, tilbúin að leggja mikið á okkur til að standa okkur,“ segir Þórdís Erla Gunnarsdóttir, liðsstjóri Auðsholtshjáleigu, um komandi vetur í Meistaradeild Cintamani.

„Við gefum ekkert eftir“

Hulda Gústafsdóttir, sem er í liði Hestvits/Árbakka/Sumarliðabæjar, segir það ekki koma að sök þó liðið hafi misst lykilmann á ögurstundu.

Við ætlum að gera betur

"Við erum býsna sterk en gerum vonandi betur en síðast,“ segir Sigurður Sigurðarson, liðsstjóri fyrsta liðsins sem kynnt er til leiks í Meistaradeild Cintamani í hestaíþróttum, lið Oddhóls/Þjóðólfshaga, en það má skoða í meðfylgjandi myndskeiði.

Ættum að geta barist á toppnum

"Ég held að við séum með rosalega jafnt og gott lið og við eigum að vera sterk í flestöllum greinum,“ segir Viðar Ingólfsson, liðsstjóri Hrímnis/Export hesta.

Hestamennska tekst öll á loft

Sigurður Vignir Matthíasson, liðsstjóri Ganghesta/Margrétarhofs/Equitec, segir að mikil spenna liggi í loftinu fyrir því að Meistaradeild Cintamani í hestaíþróttum hefjist. "Það eru allir á fullu að æfa, enda er mikill áhugi á Meistaradeildinni,“ segir Sigurður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×