Handbolti

Stefán markahæstur í bursti

Stefán Rafn í leik með ungverska liðinu.
Stefán Rafn í leik með ungverska liðinu. vísir/getty
Stefán Rafn Sigurmannsson og félagar í MOL-Pick Szeged áttu ekki í neinum vndræðum með Gyongyosi FKK í ungversku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, en lokatölur 36-18.

Pick Szeged vann átján marka sigur í kveld, en eftir að liðin höfðu farið jöfn af stað breyttu heimamenn muninum úr 7-7 í 14-7.

Þar með var leiknum lokið og Stefán Rafn og félagar keyrðu yfir andstæðinga sína og unnu að lokum öruggan átján marka sigur. Stefán skoraði átta mörk og var markahæstur.

Pick Szeged er þó ekki á toppi deildarinnar. Þeir eru í öðru sætinu með 30 stig, tveimur stigum á eftir Veszprém, sem er á toppi deildarinnar, en Veszprém á þó leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×