Innlent

Vilja óháða rannsókn á mistökum lögreglu í máli barnaverndarstarfsmanns

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Komið hefur fram að lögregla hafi beðið í fimm mánuði með að rannsaka kæru á hendur starfsmanni barnaverndaryfirvalda vegna kynferðisbrots, og ekki látið vinnuveitendur vita af kærunni fyrr en nokkrum dögum fyrir handtöku mannsins í janúar síðastliðnum.

Lögregla hafi heldur ekki látið barnaverndaryfirvöld vita þegar maðurinn var kærður árið 2013, einnig fyrir kynferðisbrot, en það mál var verið látið niður falla þar sem brotin voru fyrnd.

Allsherjar- og menntamálanefnd samþykkti í dag, að beiðni Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur þingmanns Pírata, að óska eftir minnisblaði frá dómsmálaráðuneytinu varðandi yfirsjón lögreglu í málinu.

Spurt er hvaða aðgerða hafi verið gripið til, til að bregðast við mistökum lögreglu, hvort endurskoða eigi löggjöf til að tryggja betra upplýsingaflæði milli stofnana og hvernig og hver eigi að rannsaka starfshætti lögreglu í málinu.

„Við Píratar höfum lengi verið talsmenn þess að lögregla sé ekki að rannsaka sjálfa sig. Okkur finnst mikilvægt að skýrt sé hvar ábyrgðin liggur og hvernig uppsetningin sé,“ segir Þórhildur Sunna.

Lögregla sendi frá sér yfirlýsingu í síðustu viku þar sem greint var frá því að Karl Steinar Valsson, sem mun taka við starfi Gríms Grímssonar sem yfirmaður miðlægrar rannsóknarlögreglu, muni fara fyrir tveimur hópum innan embættis lögreglu til að rannsaka meðferð málsins og vinna að frekari greiningu á þeim 170 málum sem enn bíða rannsóknar kynferðisbrotadeildar.

Þórhildur Sunna spyr hvort það sé ekki kominn tími til að endurverkja þingsályktunartillögu Pírata um sjálfstætt eftirlit með störfum lögreglu.

„Við sjáum endurtekið að eitthvað hafi misfarist hjá lögreglunni og það er ekki skýrt hver beri ábyrgð á að rannsaka hvert mál fyrir sig. Það er því full ástæða til að kanna það nánar.“


Tengdar fréttir

Brotin eiga að hafa verið framin í húsnæði á vegum Barnaverndar

Brotin sem starfsmaður Barnaverndar Reykjavíkur er grunaður um eiga að hafa átt sér stað á stuðningsheimili á vegum borgarinnar þar sem önnur ungmenni dvöldu einnig. Framkvæmdastjóri barnaverndar segir málið grafalvarlegt. Þá viðurkennir lögreglan mistök í málinu.

Brotaþoli starfsmanns barnaverndar: „Kerfið brást mér“

Brotaþoli og fjölskylda hans létu lögreglu og barnayfirvöld sérstaklega vita af kynferðisbrotum til að koma í veg fyrir að maðurinn ynni áfram með börnum. Honum var ekki vikið úr starfi fyrr en fimm árum síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×