Erlent

Trump óskar starfsmanni og meintum ofbeldismanni alls hins besta

Samúel Karl Ólason skrifar
Rob Porter og John Kelly.
Rob Porter og John Kelly. Vísir/AFP
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist leiður yfir ásökunum um að háttsettur starfsmaður Hvíta hússins hafi beitt eiginkonur sínar ofbeldi. Starfsmaðurinn, Rob Porter, hefur sagt upp störfum en Trump sagði blaðamönnum í dag að hann hefði staðið sig frábærlega í starfi og óskaði honum alls hins besta. Þar að auki óskaði Trump Porter glæsilegs frama í því næsta sem hann tæki sér fyrir hendur.

Tvær fyrrverandi eiginkonur Porter hafa sakaði hann um ofbeldi og í kjölfarið steig einnig gömul kærasta fram og sagði hann sömuleiðis hafa beitt sig ofbeldi. Porter þvertekur fyrir að hafa beitt konurnar ofbeldi.

Sjá einnig: Starfsmaður Hvíta hússins hættir vegna ásakana um heimilisofbeldi



Trump sagðist mjög sorgmæddur yfir þessum fregnum og að þær hefðu komið sér á óvart. Þá ítrekaði hann að Porter sagðist saklaus og að blaðamenn yrðu að muna það.

John Kelly, starfsmannastjóri Hvíta hússins, er nú undir þrýstingi fyrir að hafa komið Porter dyggilega til varnar. Hann mun sömuleiðis hafa vitað af ásökunum um nokkuð skeið eftir að starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI, ræddu við eiginkonur Porter vegna umsóknar um að hann fengi heimild til að meðhöndla leynileg gögn.

FBI sagði forsvarsmönnum Hvíta hússins frá hinu meinta heimilisofbeldi og þeirri staðreynd að önnur eiginkona Porter hafði fengið nálgunarbann á hann í júní í fyrra. Fyrir nokkrum vikum lagði FBI til að Porter myndi ekki fá þá heimild.

Trump með augun á Kelly

Trump er nú sagður íhuga að reka Kelly en það er þó ekki vegna þess að hann þagði yfir ásökunum eða leyfði Porter að starfa áfram í Hvíta húsinu þó hann fengi ekki öryggisheimild.

Samkvæmt heimildum NBC News innan Hvíta hússins er ástæðan sú að Kelly sem kom Porter til varnar, dró úr stuðningi sínum við Porter þegar myndir voru birtar sem sýndu aðra eiginkonu hans með áverka á andliti sem hún segist hafa fengið eftir að Porter kýldi hana.



Trump mun einnig vera pirraður út í Kelly vegna ummæla hans í fjölmiðlum undanfarið. Þar á meðal ummæla um að skoðanir Trump á innflytjendamálum væru að „þróast“ og að sumir innflytjendur væru of latir til að sækja um ríkisborgararétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×