Dómstólar ósammála um greiðslugetu Sindra Sigurður Mikael Jónsson skrifar 20. janúar 2018 07:00 Hæstiréttur taldi ekki ástæðu til að gefa Sindra Sveinssyni afslátt af sakarkostnaði líkt og héraðsdómur. Vísir/eyþór
Sindri Sveinsson, fyrrverandi starfsmaður eiginfjárfestinga Landsbankans, sem hlaut níu mánaða fangelsisdóm í markaðsmisnotkunarmáli í febrúar 2016, þarf að greiða 22,6 milljónir króna í málskostnað vegna þess máls. Þetta er niðurstaða Hæstaréttar Íslands. Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði í desember síðastliðnum að lækka upphæð fjárnáms sem gert var hjá Sindra upp á rúmar 22 milljónir króna niður í tvær milljónir. Sindra hafði í markaðsmisnotkunarmáli Landsbankans verið gert að greiða málsvarnarlaun verjanda síns, Reimars Péturssonar. Laun Reimars voru greidd úr ríkissjóði sem hóf í kjölfarið að krefja Sindra um endurgreiðslu. Sindri kvaðst ekki vera borgunarmaður fyrir upphæðinni og var því farið fram á að upphæðin yrði sótt með aðför en fjárnám reyndist árangurslaust. Sindri stefndi gerðarbeiðanda, í þessu tilfelli sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, og krafðist þess að krafan yrði lækkuð. Hann héldi látlaust heimili með eiginkonu sinni, greiddi af fasteignalánum en að húsið væri séreign konu hans. Hann væri eignalaus. Í málinu lagði hann fram kaupmála, dagsettan 27. maí 2013, því til sönnunar þar sem hann færði eignarhlut sinn í fasteigninni yfir á eiginkonu sína. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að þegar kaupmálinn var gerður hafi sakamálið verið höfðað á hendur honum rúmum tveimur mánuðum áður. Af þeim sökum hafi sýslumaður getað leitað fullnustu með fjárnámi í hlut fasteignarinnar sem hefði án kaupmálans verið í eigu Sindra. Hæstiréttur segir að fram hafi komið í gögnum sem Sindri lagði fram að hann hafi um árabil verið með talsverðar tekjur. Ekki hefði verið leitt í ljós að fjárhagur hans væri með því móti að falla bæri frá kröfu á hendur honum um greiðslu sakarkostnaðar. Ekki væri því tilefni til að taka til greina kröfu hans um að fjárnáminu yrði breytt.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Fleiri fréttir Sofa rótt í Grindavík og halda í vonina Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Sjá meira