Handbolti

Ungu strákarnir í erfiðum riðli í Króatíu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Svona líta riðlarnir út.
Svona líta riðlarnir út. mynd/twitter
Í dag var dregið í riðli fyrir lokakeppni EM hjá U-18 ára liðum í handbolta karla. Mótið fer fram í Króatíu.

Ungu strákarnir okkar lentu í riðli með Slóveníu, Svíþjóð og Póllandi. Alvöru riðill.

Þetta er annað lokamótið í röð í þessum aldursflokki sem fer fram í Króatíu. Króatar hreinlega elska að halda Evrópumót.

Mótið fer fram í Varazdin og Koprivnica frá 9. til 19. ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×