Sport

Sjáðu ræðuna sem kallaði fram táraflóð á næstum því hverri kinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Roger Federer.
Roger Federer. Vísir/Getty
Roger Federer varð um helgina fyrsti karlmaðurinn til að vinna tuttugu risatitla í tennis en ræða hans eftir sigurinn hefur vakið mikla athygli.

Federer náði þessum tímamótasigri í hús á opna ástralska risamótinu í Melbourne en hann var að vinna mótið annað árið í röð og alls í sjötta sinn á ferlinum.

Federer kallaði fram mörg tár með ræðu sinni eftir sigurinn og það fór ekki framhjá neinum hversu miklu máli sigurinn skipti hann. Þetta var hörku úrslitaleikur sem endaði ekki fyrr en í fimmtu hrinu og það var hart tekist á.

Hér fyrir neðan má sjá þessa ræðu sem endaði með því að tárin streymdu niður kinnarnar hjá Federer og flestir í salnum gátu ekki haldið aftur af þeim heldur.



Risatitlarnir eru núna orðnir tuttugu talsins eins og sjá má hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×