Körfubolti

Þegar Haukarnir voru síðast í Höllinni þá stal myrkrið senunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukamaðurinn Kristján Leifur Sverrisson var ekki fæddur þegar Haukarnir voru síðast í Höllinni í janúar 1996.
Haukamaðurinn Kristján Leifur Sverrisson var ekki fæddur þegar Haukarnir voru síðast í Höllinni í janúar 1996. Vísir/Ernir
Haukar mæta í kvöld Tindastól í undanúrslitum Maltbikar karla í körfubolta en í boði er sæti í bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöllinni á laugardaginn.

Leikurinn í kvöld verður fyrsti bikarleikur karlaliðs Hauka í Laugardalshöllinni í 22 ár eða síðan 28. janúar 1996 þegar liðið vann 85-58 sigur á ÍA í sögulegum bikarúrslitaleik.

Það má segja að myrkrið hafi stolið senunni í þessum leik í lok janúar fyrir 22 árum síðan. Glæsilega leikmannakynningin fyrir leik varð nefnilega ansi dýrkeypt.

Hálftíma fyrir leik voru aðlljósin slökkt en ætlunin var að lýsa bara upp völlinn með sérstökum ljósum. Þau virkuðu ekki og leikmenn hituðu upp í 40 mínútur í myrkri.

Leikmenn voru engu að síður kynntir til leiks en sú kynning tókst ekki vel og var meðal annars kvartað mikið yfir hræðilegri tónlist.







Frétt um leikinn í DV.
Það tókst hinsvegar ekki að kveikja á aðalljósunum eftir kynninguna. Á endanum þurfti að fá rafvirkja á staðinn til að laga ljósin sem þýddi að leikurinn hófst ekki fyrr en klukkan 16.35 eða rúmum hálftíma og seint.

Skagamenn sáu aldrei til sólar í leiknum, kenndu töfinni um og Haukarnir unnu öruggan sigur. Ljósin hafa ekki verið slökkt í Laugardalshöllinni síðan og það má ekki búast við því að menn taki upp á því í kvöld.

Ívar Ásgrímsson, þjálfari Hauka í dag, var leikmaður liðsins fyrir 22 árum en hann skoraði fjórtán stig í úrslitaleiknum og var þriðji stigahæsti leikmaður Hauka.

Fyrirliði liðsins í þessum leik var Jón Arnar Ingvarsson en sonur Jóns, Kári, verður í stóru hlutverki í Haukaliðinu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×