Rétti tíminn til að stíga fram 12. janúar 2018 11:00 Þóra Jónsdóttir, söngkona og lögfræðingur, og Pálmi Sigurhjartarson sömdu saman lagið Orð til þín. Þau halda tónleika á skírdag. MYND/EYÞÓR
Lögfræðingurinn Þóra Jónsdóttir lét gamlan draum rætast fyrir síðustu jól þegar hún gaf út sitt fyrsta lag sem nefnist Orð til þín. Þóra, sem er 43 ára gömul, hefur frá barnsaldri tengst tónlist með ýmsum hætti. Hún lærði á píanó sem unglingur, söng í hljómsveitum og sótti söngnám í tónlistarskóla FÍH. Þegar hún stofnaði fjölskyldu milli tvítugs og þrítugs varð músíkin svolítið undir að hennar sögn. „Upp úr aldamótum héldum við Pétur Ben, náfrændi minn, saman nokkra tónleika og ég var svona að þreifa fyrir mér. Ég var þó ekkert farin að leiða hugann að því að semja músík á þessum árum. Tónlistarþráin blundaði þó í henni og lét sterklega á sér kræla öðru hverju. „Veturinn 2006-2007 tók ég ársnám í „complete vocal“ tækni sem hefur síðan rutt sér til rúms hér á landi og er mikið notuð af söngfólki. Mér fannst frábært að stunda þetta nám og ég lærði mjög mikið en mig skorti trú á að ég ætti erindi sem tónlistarkona.“Þóra og Pálmi hófu samstarf í haust sem sér ekki fyrir endann á.MYND/EDDIÞakklát tækifærunum Hún tók því u-beygju í lífinu og skráði sig í lögfræði sem hún kláraði árið 2013. „Í dag starfa ég sem lögfræðingur hjá Barnaheillum. Ég elska vinnuna mína og hef mikinn áhuga á mannréttindamálum. Á síðasta ári ákvað ég þó, að nú ég gæti ekki lengur vanrækt tónlistaráhugann eins og ég hafði gert of lengi og skráði mig á námskeið sem kallað er Söngur og sjálfstraust. Nú skyldi ég út með mig. Einnig ákvað ég að taka píanótíma hjá Pálma Sigurhjartarsyni sem ég kannaðist aðeins við. Þessar ákvarðanir leiddu mig á þann stað sem ég er komin á núna.“ Hún finnur að nú er rétti tíminn til að stíga fram sem tónlistarkona. „Ég var ekki tilbúin fyrr því ég setti fókusinn á annað af ýmsum ástæðum. En nú hefur líf mitt umpólast og það hverfist nánast um tónlistina og það er dásamlegt og magnað. Markmiðin mín eru þau helst að semja og semja, halda tónleika og gefa út músík. Og njóta og hafa gaman af. Og slaka á og fyrirgefa bullið í efasemdaröddunum. Svo ætla ég að vera þakklát fyrir tækifærin sem koma. Það er aldrei of seint að láta drauminn rætast.“,,Textinn við Orð til þín, sem er óður til ástarinnar og mjög persónulegur, fæddist í lok nóvember og lagið kom nær samstundis þegar ég sendi hann til Pálma," segir Þóra.MYND/EDDIGott flæði Þóra samdi textann við lagið Orð til þín en Pálmi Sigurhjartarson samdi lagið. „Hann hvatti mig áfram í að taka mér pláss sem tónlistarkona, og var að leiðbeina mér á píanóið og í músík. Í kjölfarið fundum við þörf og flöt á samstarfi sem við leyfðum að verða til. Textinn við Orð til þín, sem er óður til ástarinnar og mjög persónulegur, fæddist í lok nóvember og lagið kom nær samstundis þegar ég sendi hann til Pálma. Við ákváðum mjög fljótt að taka lagið upp og þegar því var lokið var engin ástæða til að bíða með útgáfuna. Ég var auðvitað orðin mjög tilbúin að koma frá mér efni og óskaplega glöð yfir þessari þróun.“ Þótt fyrsta lagið sé komið út segist Þóra rétt komin út úr skápnum sem texta- og lagahöfundur. „En nú er flæðið mjög gott og margt að verða til. Textarnir mínir eru tilfinningatengdir og persónulegir. Ég leyfi mér að tala frá hjartanu. Tónlistin mín er enn svo ný að það er ekki hægt að merkja hana og hún gæti þróast á alls kyns vegu. Ég stefni á að gefa út fleiri lög á þessu ári en við Pálmi erum byrjuð að vinna nýtt efni. Við ætlum að halda tónleika á skírdag þar sem við munum flytja eigið efni ásamt lögum eftir aðra.“ Nánari upplýsingar um Þóru og tónlist hennar má finna á Facebook og á Spotify.
Mest lesið Byrjuðu saman sex árum eftir fyrstu skilaboðin Lífið Ætlar ekki að láta fjarlægja nafn Kleina Lífið Alexandra greifynja breytir nafninu Lífið Forsetaáskorunin: Fraus á fyrsta Ted fyrirlestrinum en fann sig í augum Sally Fields Lífið Nefnir nautin eftir þekktum íslenskum röppurum og Bent er alltaf með eitthvað vesen Lífið Eigendur Sportvörur.is selja einbýlið í Garðabæ Lífið Segir konur fórna líkama sínum og heilsu á meðgöngu Lífið Svaraði engu um Affleck Lífið Birnir og Bríet gefa saman út plötu Lífið Tvöföld vandræði fyrir Doctor Victor Lífið Fleiri fréttir Eigendur Sportvörur.is selja einbýlið í Garðabæ Eins árs leikhússkóli fyrir ungt fólk stofnaður í Þjóðleikhúsinu Segir konur fórna líkama sínum og heilsu á meðgöngu Nefnir nautin eftir þekktum íslenskum röppurum og Bent er alltaf með eitthvað vesen Svaraði engu um Affleck Byrjuðu saman sex árum eftir fyrstu skilaboðin Alexandra greifynja breytir nafninu Birnir og Bríet gefa saman út plötu Einn stofnenda Train er látinn Forsetaáskorunin: Fraus á fyrsta Ted fyrirlestrinum en fann sig í augum Sally Fields Rakel María fann draumaprinsinn Tvöföld vandræði fyrir Doctor Victor Ætlar ekki að láta fjarlægja nafn Kleina Ísdrottningin einhleyp Sást með hringinn en eiginkonan enn víðsfjarri Ásdís Rán og frítt húðflúr hjá Prettyboitjokkó Litfögur listamannaíbúð við Melhaga Af vængjum fram: Ýmist skömmuð fyrir geiflurnar eða fyrir að vera fýluleg „Ísbirnirnir voru rétt hjá okkur“ Mætti í sjónvarpið eftir nokkurra ára hlé og segist hafa lært sína lexíu Er hægt að „lækna“ lélegt kynlíf? Forsetaáskorunin: Hljóp í skarðið á Stuðmannaballi en í basli með textann Prinsinn hélt blautt garðpartý Keppendur í Ungfrú Ísland 2024 Glæsihús Gerðar í Blush aftur á sölu Clooney mælti með handtöku Netanyahu Stjörnulífið: Löng helgi, hátíðarsýning og tónleikar Með átján husky hunda á heimilinu og mæla með Forsetaáskorunin: Höfuðborgin ætti að vera í góða veðrinu fyrir norðan eða austan Sungið og sungið á Sauðárkróki Sjá meira