Körfubolti

Curry-lausir Warriors unnu 11. útisigurinn í röð

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Kevin Durant setti 26 stig í nótt
Kevin Durant setti 26 stig í nótt vísir/getty
Meistararnir í Golden State Warriors unnu sinn ellefta útisigur í röð þegar liðið hafði betur gegn Milwaukee Bucks í nótt.

Stephen Curry var fjarri góðu gamni í liði Warriors í nótt vegna meiðsla á ökkla, en það kom ekki að sök því Kevin Durant setti 26 stig og Draymond Green bætti við 21 sem tryggði Warriors 94-108 sigur á Bucks.

Warriors voru með 63-49 forystu í hálfleiknum, en hleypti Bucks aftur inn í leikinn í þriðja leikhluta, en heimamenn unnu hann með 33 stigum gegn 17. Þjálfari Warriors, Steve Kerr, sagði Warriors hafa verið lata í varnarvinnunni í þriðja leikhluta, en náðu að vinna sig í gang.

Stuðningsmanni Bucks var vikið út af vellinum snemma í fjórða leikhluta eftir að hafa hraunað yfir Klay Thompson með ljótu orðbragði. Það var brotið á Thompson svo hann féll til jarðar rétt hjá sæti stuðningsmannsins, sem var í fremstu röð, og hann ákvað að standa upp og hrauna yfir Thompson. Thompson lét öryggisverði vita og manninum var fylgt út úr keppnishöllinni.



Indiana Pacers komu til baka eftir að hafa verið undir með 22 stigum gegn Cleveland Cavaliers og unnu tveggja stiga sigur, 97-95.

LeBron James hefði getað tryggt Cavaliers sigurinn með þriggja stiga skoti á síðustu sekúndunni, en flautuþristurinn vildi ekki niður og þriðji sigur Pacers á Cleveland á tímabilinu staðreynd.

Lance Stephenson var aðalmaðurinn í liði Pacers í nótt. Hann skoraði aðeins 16 stig en var með 11 fráköst og fiskaði tæknivillu á James seint í leiknum og náði að trufla James ítrekað.

„Lance spilar bara svolítið óhreint, þannig er það. Ég hefði átt að vera tilbúinn í það, ég hef vitað það lengi að það er ekki sá sem segir brandarann sem er skammaður heldur sá sem hlær og þeir náðu mér. Hann spilað samt vel,“ sagði James sem var með 27 stig, 11 stoðsendingar og 8 fráköst.



Úrslit næturinnar:

Charlotte Hornets - Utah Jazz 99-88

Indiana Pacers - Cleveland Cavaliers 97-95

Washington Wizards - Orlando Magic 125-119

Atlanta Hawks - Brooklyn Nets 105-110

Milwaukee Bucks - Golden State Warriors 94-108

Minnesota Timberwolves - New York Knicks 118-108

New Orleans Pelicans - Portland Trail Blazers 119-113

Denver Nuggets - Memphis Grizzlies 87-78

Phoenix Suns - Houston Rockets 95-112

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×