Handbolti

Kári Kristján: Mér líður eins og ég sé NBA-stjarna

Henry Birgir Gunnarsson í Split skrifar
Kári tók nokkrar pósur á hóteli landsliðsins í gær.
Kári tók nokkrar pósur á hóteli landsliðsins í gær. vísir/getty
„Er ég ekki hress og skemmtilegur? Er það ekki oft sagt?“ sagði Eyjamaðurinn Kári Kristján Kristjánsson á hóteli landsliðsins í gær. Í spariskapinu eins og svo oft áður.

Hann fékk ekkert að spila i leiknum gegn Svíum en vonast eftir spiltíma gegn Króötum í kvöld.

„Það myndi ekkert skemma að fá aðeins að prófa. Arnar minn var að vinna fína vinnu og standa vel í þessum peyjum. Þeir þurftu að hafa fyrir honum.“

Króatísku leikmennirnir eru aðeins stærri en þeir sænsku heilt yfir og ekki ólíklegt að Geir þurfi að henda Heimaklettinum á línuna til þess að berjast við þá.

„Það gæti mögulega þurft að grípa til þess ráðs. Þetta eru djöfulsins lurkar. Þessir í miðjublokkinni eru bergrisar. Þeir munu þurfa að ganga út í Aron og verður fróðlegt að sjá hvað þeir gera. Þetta er alltaf helvíti gaman. Maður væri ekki hérna nema maður væri sjúkur í það.“

Strákarnir hafa stundum á stórmótum lent á lélegum hótelum en þeim leiðist ekki lífið á fimm stjörnu hótelinu í Split.

„Manni líður eins og NBA-stjörnu. Þetta er alveg yndislegt. Stutt í ströndina og allt til taks,“ segir Kári en enginn hefur enn treyst sér í sjóinn. Það gæti breyst.

„Það kemur að því og það verður kannski ekki að hans vilja.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×