Sport

Endurkomusigur hjá Örnunum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rodney McLeod fagnar eftir að hafa fellt Matt Ryan, leikstjórnanda Atlanta Falcons.
Rodney McLeod fagnar eftir að hafa fellt Matt Ryan, leikstjórnanda Atlanta Falcons. Vísir/Getty
Philadelphia Eagles er komið áfram í úrslitaleik Þjóðardeildarinnar í NFL-deildinni í Bandaríkjunum eftir sigur á Atlanta Falcons í háspennuleik í kvöld, 15-10.

Það var mjótt á munum allan leikinn og eftir að bæði lið skoruðu snertimark í fyrri hálfleik var staðan 10-9, Philadelphia í vil. Eini munurinn á liðunum var að sparkari Philadelphia nýtti ekki vallarmarkstilraun fyrir aukastigi eftir snertimark LaGarette Blount.

Vörn Philadelphia spilaði frábærlega í allt kvöld og náði að halda Matt Ryan, leikstjórnanda Falcons, sem og hlauparanum Devonta Freeman í skefjum.

Sókn Philadelphia virtist ekki sannfærandi í fyrri hálfleik en Nick Foles, leikstjórnandi arnanna, komst á flug í síðari hálfleik og setti saman tvær sóknir sem enduðu báðar með vallarmarki. Þaðan komu stigin sex sem komu Philadelphia yfir, 15-10, fyrir lokasókn Atlanta í leiknum.

Nick Foles.Vísire/Getty
Fálkarnir komu sér loksins á flug þegar mest lá við. Útherjinn Julio Jones greip boltann á ögurstundi til að halda lífi í sókn Atlanta og komst liðið alla leið að tveggja jarda línunni á vallarhelmingi heimamanna.

Þar fékk Ryan eitt tækifæri til að tryggja Atlanta sigurinn og kastaði hann boltanum í áttina að áðurnefndum Jones, sem náði ekki að grípa boltann. Þar með voru vonir Atlanta úti og sigurinn tryggður hjá heimamönnum stuttu síðar, við gríðarlegan fögnuð áhorfenda.

Foles er varaleikstjórnandi Eagles en hefur verið í byrjunarliðinu síðan að Carson Wentz sleit krossband í hné undir lok deildarkeppninnar. Hann spilaði ekki vel í síðustu leikjum arnanna en gerði nóg í kvöld, sérstaklega þegar mest var undir í síðari hálfleik. Þetta flokkast seint sem stjörnuframmistaða hjá leikstjórnanda í úrslitakeppninni en miðað við þær væntingar sem voru gerðar stóðst hann þær og gott betur.

Foles var með 246 sendingajarda í leiknum en hlauparinn Jay Ajayi spilaði vel í kvöld og var með samtals 115 jarda. Hjá Atlanta var Ryan með 210 sendingajarda og Jones 101 jarda.

Hlauparinn Devonta Freeman, einn besti leikmaður deildarinnar í sinni stöðu, réði þó ekkert við vörn Philadelphia og endaði með aðeins sjö jarda í tíu tilraunum.

Philadelphia fær að spila úrslitaleik Þjóðardeildarinnar á heimavelli og mætir þar annað hvort Minnesota Vikings eða New Orleans Saints, sem eigast við annað kvöld.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×