Handbolti

Janus Daði: Höfðum bullandi trú á sigri

Smári Jökull Jónsson skrifar
„Þetta er hundfúlt. Við komum í leikinn til að vinna og við höfðum bullandi trú á því eins og mér fannst við sýna alveg frá byrjun. Þetta gekk ekki í dag,“ sagði Janus Daði Smárason, sem skoraði þrjú mörk í sjö marka tapi gegn Króatíu á Evrópumótinu í kvöld, þegar Henry Birgir Gunnarsson hitti hann að máli að leik loknum.

Aðeins munaði einu marki á liðunum í hálfleik eftir fína frammistöðu Íslands í fyrri hálfleiknum fyrir framan troðfulla höll í Split.

„Mér fannst við vera góðir og vinna fyrir því. Við vorum þéttir varnarlega, ákveðnir sóknarlega og skipulagðir. Mér fannst við síðan spila upp á fín færi í byrjun seinni hálfleiks. Það vantaði þessa seinustu sendingu eða síðasta skot til að klára sóknirnar. Þegar þeir komast á lagið þá fer þetta hratt úr höndunum á okkur," bætti Janus Daði við en Króatarnir breyttu stöðunni úr 14-14 í 23-16 í upphafi síðari hálfleiks.

Stemmningin í höllinni í Split var mögnuð enda Króatar á heimavelli og ætla sér stóra hluti í keppninni.

„Þetta var ógeðslega gaman og maður nýtur sín í botn á vellinum. Ég er ánægður með að ég fékk að spila mikið í dag og fannst ég njóta þess að spila.“

Eftir fínan fyrri háfleik fór eflaust um einhverja heimamenn í stúkunni og Janus jánkaði því þegar hann var spurður hvort það væri ekki gaman að þagga aðeins niður í áhorfendum.

„Það er alltaf kúl. Svo er ég með liðsfélagana á bekknum sem bakka mann upp við hvert tækifæri. Þetta var mjög gaman en það þýðir ekkert að svekkja sig og við þurfum að nota þetta í eitthvað gott. Við þurfum að bæta okkur með hverjum leiknum og það er markmiðið.“

Janus sagðist engar áhyggjur hafa af því að tapið í kvöld hefði slæm áhrif á liðið fyrir leikinn mikilvæga gegn Serbum.

„Þetta eru allt svo miklir fagmenn og margir sem hafa gert þetta svo oft að það þýðir ekkert. Þetta gekk ekki í dag og við svekkjum okkur aðeins inni í klefa en svo erum við bara klárir í næsta leik.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×