Handbolti

Skýrsla Henrys: Strákarnir okkar reyktir í síðari hálfleik

Henry Birgir Gunnarsson í Split skrifar
Janus Daði fær hér óblíðar móttökur hjá króatísku vörninni.
Janus Daði fær hér óblíðar móttökur hjá króatísku vörninni. vísir/epa
Eftir ákaflega lofandi frammistöðu í fyrri hálfleik þá féll strákunum okkar allur ketill í eld í síðari hálfleik og sterkir Króatar reykspóluðu í burtu og skildu þá eftir í reyknum. Þó ekki sígarettureyknum þó svo þeir hafi hreinlega reykt okkar menn í seinni hálfleik og unnið 29-22.

Fyrri hálfleikur var stórkostleg skemmtun. Frábær sóknarleikur beggja liða þar sem menn skoruðu að vild. Eldfljótir Króatar voru mjög erfiðir við að eiga en okkar strákar voru óhræddir, settu út kassann og svöruðu alltaf fyrir sig.

Geir þjálfari kom svolítið á óvart er hann byrjaði með Janus Daða, Ómar Inga og Bjarka Elísson í sókninni. Bjarki fékk úr engu að moða en mikið mæddi á Janusi og Ómari. Þeir létu ekki ellefu þúsund áhorfendur hræða sig. Mættu grjótharðir til leiks og sölluðu inn mörkum á Króatana ásamt því að búa til. Þvílíkir töffarar.

Ekki skemmdi fyrir að Aron Pálmarsson var vel gíraður og ef vörnin hefði staðið í lappirnar framan af fyrri hálfleik þá hefði íslenska liðið náð frumkvæðinu.

Óþarfa heimadómgæsla

Það kom um miðjan hálfleikinn er Ísland komst yfir, 8-7. Bjöggi byrjaður að verja og sóknarleikurinn frábær. Þá byrjuðu slakir rússneskir dómarar að aðstoða heimamenn. Algjörlega óþolandi. Gott lið eins og Króatía þarf ekki á aðstoð dómara að halda á heimavelli.

Strákarnir einnig klaufar og köstuðu boltanum frá sér en þeir voru í vandræðum með 5/1 vörn Króatana þar sem hinn stóri Igor Vori var alltaf að flækjast fyrir. Króatar eldsnöggir að koma sér aftur yfir og þeir litu í raun aldrei til baka.

Króatía leiddi með einu marki, 14-13, í hálfleik. Það er geggjuð staðreynd í ljósi þess að króatísku markverðirnir vörðu aðeins eitt skot í fyrri hálfleik! Ísland var aftur á móti með átta tapaða bolta. Blóðugt.

Allir leikmenn íslenska liðsins nýttu sín skot í fyrri hálfleik fullkomlega en Aron Pálmarsson klikkaði á tveimur skotum. Það voru einu skotin sem fóru forgörðum. Fáranleg tölfræði.

Bjarki Már hefur oft átt betri leik en í kvöld. Hann er hér búinn að missa Karacic fram hjá sér og tekur hann á hálstaki.vísir/epa
Herbragðið sem er að drepa handboltann

Síðari hálfeikur fór hörmulega af stað. Lino Cervar dró fram gamalt herbragð þar sem honum leist ekki á stöðuna. Fór að spila með sjö í sókn eins og hann gerði allt síðasta HM með Makedóníu. Leiðinlegasta herbragð sögunnar sem getur drepið allt úr leiðindum og er að drepa handboltann.

Það gerði þó gæfumuninn fyrir liðið núna. Íslenska liðið æfði sig ekki sérstaklega fyrir sjö manna sókn sem verður að teljast nokkuð sérstakt þar sem líklegt var að Cervar myndi fara í þá taktík.

Eftir tíu mínútur af síðari hálfleik voru Króatar komnir með sex marka forskot, 21-15, og leiknum í raun lokið. Sóknarleikurinn ekki góður hjá okkar mönnum. Áræðnin horfin og of oft beðið eftir því að Aron myndi gera eitthvað.

Strákarnir komu sér samt í færi en skotin voru léleg. Þegar Guðjón Valur klikkaði síðan í hraðaupphlaupi var alveg ljóst að þetta var ekki okkar dagur. Króatar lönduðu þægilegum sigri en strákarnir fá prik fyrir að hætta aldrei.

Það var margt virkilega jákvætt við leik íslenska liðsins í þessum leik og gaman að sjá framlag frá mörgum mönnum á þessu móti. Geir óhræddur við að dreifa leiktímanum og allir leikmenn fá traust frá þjálfaranum.

Það voru aftur á móti gæði Króata, frábærir áhorfendur, lélegir dómarar og klaufaskapur íslenska liðsins sem varð þess valdandi að íslenska liðið sá aldrei til sólar í síðari hálfleik.

Það var tækifæri miðað við stöðuna í hálfleik og auðvitað svekkjandi að sá síðari hafi ekki verið betri.

Vörnin var ekki nógu góð og markvarslan þar af leiðandi ekki heldur. Sóknarleikurinn flottur lengstum en strákarnir á línunni verða að fara að grípa boltann. Einn besti sendingamaður heims er að mata þá.

Það var svo sem aldrei búist við því að liðið myndi vinna Króata og því verður að taka það jákvæða með úr þessum leik og taka það með í leikinn mikilvæga gegn Serbum.

Strákarnir eru enn í stöðu til þess að fara inn í milliriðil í fínum málum og því er engin ástæða til þess að fara á taugum eftir þetta tap í kvöld.


Tengdar fréttir

Geir: Fannst dómgæslan halla á okkur

Geir Sveinsson, þjálfari Íslands, segir að það hafi margt farið í gegnum kollinn á sér í lok leiksins gegn Króatíu sem tapaðist á EM í Split í kvöld. Hann segir að dómgæslan hafi stundum verið furðuleg, en vill þó fá að skoða hana aftur og betur. 



Aron: Voru ekki betri en við fannst mér

Aron Pálmarsson, stórskytta Íslands, segir að það fari rosalega mikið í taugarnar á sér hvernig íslenska liðinu tókst ekki að klára sóknir sínar fyrstu tíu mínúturnar í síðari hálfleik. Hann segist þó ánægður með spilamennsku, að mestu leyti.

Janus Daði: Höfðum bullandi trú á sigri

"Þetta er hundfúlt. Við komum í leikinn til að vinna og við höfðum bullandi trú á því eins og mér fannst við sýna alveg frá byrjun. Þetta gekk ekki í dag,“ sagði Janus Daði Smárason sem skoraði þrjú mörk í sjö marka tapi gegn Króatíu á Evrópumótinu í kvöld.

Einkunnir Íslands: Ólafur og Aron bestu menn íslenska liðsins

Ólafur Guðmundsson og Aron Pálmarsson voru bestu menn íslenska landsliðsins í tapinu á móti Króatíu samkvæmt einkunnagjöf HB Statz. Íslendingar töpuðu þá með sjö marka mun á móti gestgjöfum Króata á EM í handbolta, 29-22.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×