Erlent

Á sjötta tug hafa farist vegna fellibylsins Övu

Atli Ísleifsson skrifar
Fellibyljir herja reglulega á Madagaskar.
Fellibyljir herja reglulega á Madagaskar. Vísir/AFP
Alls hefur 51 maður látið lífið vegna fellibylsins Övu sem gekk yfir Madagaskar fyrr í mánuðinum. 22 er enn saknað.Frá þessu greinir talsmaður heilbrigðisyfirvalda í landinu.

Um 54 þúsund manns á eyjunni hafa neyðst til að flýja heimili sín vegna flóða, úrhellis og mikilla vinda á síðustu vikum.

Madagaskar er eitt af fátækustu ríkjum heims og fellibyljir herja reglulega á eyjuna. Í mars á síðasta ári fórust 78 manns hið minnsta vegna fellibylsins Enawo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×