Körfubolti

Fyrsta tap Helenu í Slóvakíu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Helena í leik með Englunum.
Helena í leik með Englunum. vísir/getty
Helena Sverrisdóttir skoraði þrjú stig þegar lið hennar Good Angels Kosice tapaði fyrir Piestanske Cajky, 72-66, í toppbaráttu slóvenska körfuboltans.

Englarnir áttu góðan fyrsta leikhluta og voru yfir að loknum fyrri hálfleik, 34-42. Í þriðja leikhluta fór allt í hund og kött og Englarnir skoruðu einungis níu stig í þriðja leikhluta.

Það varð þeim að falli, en munurinn varð að endingu sex stiga munur, 72-66. Þetta var fyrsta tap Englana í fjórtán leikjum sem eru í öðru sætinu með 26 stig, en Piestanske skaust á toppinn.

Helena skoraði þrjú stig á þeim rúmlega fimmtán mínútum sem hann spilaði, en hún hitti einungis úr einu skoti af fimm. Einnig tók hún sex fráköst og gaf eina stoðsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×