Nefnd um dómarastörf tók kvörtun Jóns Steinars ekki til greina Jóhann Óli Eiðsson skrifar 8. janúar 2018 06:00 Máli Jóns Steinars var vísað frá. vísir/gva
Nefnd um dómarastörf tók ekki til umfjöllunar kvörtun Jóns Steinars Gunnlaugssonar, lögmanns og fyrrverandi hæstaréttardómara, þess efnis að meirihluti dómara við Hæstarétt hafi gert á hlut hans er Jón sótti um sem dómari. Niðurstöður nefndarinnar voru nýlega birtar á nýrri heimasíðu Dómstólasýslunnar. Í kvörtun Jóns Steinars segir að þegar hann hafi sótt um embættið árið 2004 hafi átta af níu dómurum við dómstólinn ekki viljað fá hann í sinn hóp. Þá segir hann að „einum þeirra [hafi] verið falið á þeim tíma að flytja álitsbeiðanda skilaboð um það sem og hvatningu um að falla frá hugmyndum um að sækja um embættið. Jafnframt hefði honum verið tjáð að léti hann verða af því að sækja um embættið, yrði hann skaðaður með umsögn réttarins“. Í erindinu kemur enn fremur fram að dómararnir hafi staðið við framsetta hótun. Settur dómsmálaráðherra hafi hins vegar „ekki látið meirihluta Hæstaréttar komast upp með þetta framferði“ og skipað Jón Steinar í embætti hæstaréttardómara. Jón Steinar hafði áður kvartað til innanríkisráðuneytisins árið 2016 en ráðuneytið vísaði honum til nefndar um dómarastörf þar sem erindið heyrði undir varðsvið hennar.. Ráðuneytið taldi að nefndinni bæri að fjalla um öll störf dómara í embætti sínu, hvort sem þau vörðuðu einstök dómsmál eða stjórnsýsluverkefni sem heyra undir verksvið dómara landsins. Í niðurstöðu nefndarinnar segir hins vegar að mál Jóns Steinars taki til stjórnsýslu dómstólanna en þangað nái valdsvið hennar ekki. Að auki hafi sjö af þeim átta dómurum, sem kvörtunin beinist að, látið af störfum. Agavald nefndarinnar nái aðeins til þeirra dómara sem enn séu starfandi. Málinu var vísað frá nefndinni af þeim sökum.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Jón Steinar segir lögmenn sem hengda uppá snaga hjá dómurum Lögmannafélagið hafnar ósk um almennan fund um bókina Með lognið í fangið. 21. desember 2017 14:22 Hæstaréttardómari höfðar meiðyrðamál gegn Jóni Steinari Benedikt Bogason hæstaréttardómari hefur höfðað dómsmál á hendur Jóni Steinari Gunnlaugssyni vegna ummæla sem birtust í nýlegu riti hans um Hæstarétt. 9. nóvember 2017 19:08 Benedikt vill tvær milljónir frá Jóni Steinari Vill fimm ummæli í nýrri bók Jóns Steinars dauð og ómerk. 10. nóvember 2017 11:30 Mest lesið Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Erlent „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Innlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Innlent Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Innlent Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Innlent Fleiri fréttir Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla „Heiðurstengt ofbeldi er ekki okkar stærsta vandamál“ Eldgosið í beinni útsendingu Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi Páll sýknaður Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru Þorvaldur tekur undir goslokaspá Haraldar Gætu gloprað niður sigrinum eða tryggt sér hann í kvöld Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Viðhald eigna og verðmætabjörgun í Grindavík í dag Piparúða beitt gegn mótmælendum í Skuggasundi Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Lífið brosir við mæðgum eftir áralangt einelti Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Notuðu piparúða á mótmælendur Hvattur til að draga sig til hlés til að klekkja á Katrínu Sérfræðingar í straumvatnsleit aðstoða við leit í Fnjóská Gekk misvel að tala um kvótakerfið á fjörutíu sekúndum á ensku Bjarni fundar með Selenskí í Stokkhólmi Alþjóðasamfélagið sé að klikka á Gasa Sjá meira
Jón Steinar segir lögmenn sem hengda uppá snaga hjá dómurum Lögmannafélagið hafnar ósk um almennan fund um bókina Með lognið í fangið. 21. desember 2017 14:22
Hæstaréttardómari höfðar meiðyrðamál gegn Jóni Steinari Benedikt Bogason hæstaréttardómari hefur höfðað dómsmál á hendur Jóni Steinari Gunnlaugssyni vegna ummæla sem birtust í nýlegu riti hans um Hæstarétt. 9. nóvember 2017 19:08
Benedikt vill tvær milljónir frá Jóni Steinari Vill fimm ummæli í nýrri bók Jóns Steinars dauð og ómerk. 10. nóvember 2017 11:30