Körfubolti

Fjórir sigrar í röð hjá Haukum sem halda í við Val

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Dýrfinna Arnardóttir var með tíu stig í leiknum í kvöld.
Dýrfinna Arnardóttir var með tíu stig í leiknum í kvöld. Vísir/Eyþór
Haukar unnu sex stiga sigur á Stjörnunni 82-76 og komust aftur upp í annað sæti Dominos-deildarinnar í lokaleik 15. umferðar í kvöld.

Var þetta fjórði sigur Hauka í röð sem eru þó enn fjórum stigum á eftir Valsliðinu á toppi deildarinnar.

Stjarnan byrjaði leikinn betur og leiddi lengst af í leiknum en þegar komið var að fjórða leikhluta virtust Stjörnukonur verða bensínlausar.

Unnu Haukakonur lokaleikhlutan með fimmtán stigum en munar þar eflaust að þær fengu 20 stig af bekknum í kvöld en Stjörnuliðið fékk ekki stig frá varamönnunum.

Cherise Michelle Daniel var stigahæst í liði Hauka með 28 stig og 12 fráköst en í liði Stjörnunnar gældi Danielle Victoria Rodriguez við þrennu með 32 stig, 13 stoðsendingar og átta fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×