Körfubolti

Stórleikur Westbrook dugði ekki til

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Westbrook er alltaf í stuði en það er ekki alltaf nóg.
Westbrook er alltaf í stuði en það er ekki alltaf nóg. vísir/getty
Russell Westbrook var með sína fjórtándu þreföldu tvennu á tímabilinu í nótt en það dugði ekki til gegn Phoenix.

Westbrook skoraði 26 stig, tók 10 fráköst og gaf 11 stoðsendingar en félagar hans voru ekki í eins miklu stuði.

Carmelo Anthony og Paul George hittu samtals úr 11 af 28 skotum sínum og bekkur Thunder var með aðeins 21 stig.

LA Lakers náði aldrei þessu vant að vinna leik þar sem Brandon Ingram skoraði 20 stig fyrir liðið í sigri á Atlanta.

Úrslit:

Miami Heat-Utah Jazz 103-102

Phoenix Suns-Oklahoma City Thunder 114-100

Los Angeles Lakers-Atlanta Hawks 132-113

New York Knicks-Dallas Mavericks 100-96

Portland Trail Blazers-San Antonio Spurs 111-110

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×