Körfubolti

Kerr: LaVar Ball er Kardashian-meðlimurinn í NBA-fjölskyldunni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
LaVar er hér í Litháen þar sem tveir synir hans munu spila körfubolta á næstunni.
LaVar er hér í Litháen þar sem tveir synir hans munu spila körfubolta á næstunni. vísir/getty
Steve Kerr, þjálfari meistara Golden State Warriors, skilur ekkert í því hvað bandarískir fjölmiðlar nenna að fjalla mikið um körfuboltapabbann LaVar Ball.

Kerr segist vera hugsi yfir því hvernig íþróttaumfjöllun hafi breyst frá því að fjallað sé um leiki í að fjallað sé um eitthvað sem er bara tómt bull. Hann hefur meira að segja beðið fjölmiðla að hætta að fjalla um Ball.

„Einhvers staðar í Litháen núna er LaVar Ball að hlæja að okkur öllum. Blaðamenn éta úr lófa hans að ástæðulausu. Hann er eins og Kardashian-meðlimurinn í NBA-fjölskyldunni og það virðist selja. Það skiptir ekki einu sinni máli hvað sé satt og rétt í pólitík og íþróttum lengur. Eina sem skiptir máli er að fréttin selji,“ segir Kerr pirraður.

„Það er til fjöldi foreldra sem kvartar yfir því að börnin þeirra spili ekki nóg en allir nenna að hlusta á þennan pabba. Ég veit ekki hvaða fólk þetta er sem hefur áhuga á þessu en það virðist vera nóg af fólki fyrst ESPN er að eyða peningum til þess að elta hann til Litháen.“

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×