Enski boltinn

Upphitun: Nýársdagsfótboltinn

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Það er þétt leikið í ensku úrvalsdeildinni þessa dagana. 21. umferðin kláraðist í gær og sú 22. hefst í dag með fimm leikjum.

Dagurinn hefst með leik Brighton og Bournemouth í suðurstrandarslag í hádeginu.

Svo klukkan þrjú eigast við Burnley og Liverpool á Turf Moor, Leicester og Huddersfield á King Power vellinum og Stoke tekur á móti Newcastle.

Lokaleikur dagsins er svo viðureign Everton og Manchester United á Goodison Park.

Leikir dagsins:

12:30 Brighton - Bournemouth, í beinni á Stöð 2 Sport

15:00 Burnley - Liverpool, í beinni á Stöð 2 Sport

15:00 Leicester - Huddersfield

15:00 Stoke - Newcastle

17:30 Everton - Manchester United, í beinni á Stöð 2 Sport




Fleiri fréttir

Sjá meira


×