Lífið

Kominn með enn eina fyrirsætuna upp á arminn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leo og Cami eru nýtt par.
Leo og Cami eru nýtt par. Vísir / Getty Images
Óskarsverðlaunahafinn Leonardo DiCaprio er byrjaður með fyrirsætunni Cami Morrone samkvæmt frétt tímaritsins Us Weekly. 23ja ára aldursmunur er á parinu en Leonardo er 43ja ára og Cami tvítug.

Heimildarmaður Us Weekly segir að þau hafi sést yfirgefa heimili Cami síðasta laugardag og farið síðan í verslunarferð í Barneys í Los Angeles.

Þetta er langt frá því að vera í fyrsta sinn sem Leonardo deitar fyrirsætu, en það virðist vera orðið hans einkennismerki í ástarlífinu.

Leonardo og Gisele á meðan allt lék í lyndi.Vísir / Getty Images
Leikarinn hætti með Sports Illustrated-fyrirsætunni Ninu Agdal í maí, eftir eins árs samband. Þá var hann yfir sig ástfanginn af brasilísku fyrirsætunni Gisele Bundchen á árunum 2000 til 2005 og kom það mörgum í opna skjöldu þegar þau slitu samvistum. 

Leo og Bar höfðu gaman að því að fara á kappleiki saman.Vísir / Getty Images
Því næst byrjaði Leonardo með fyrirsætunni Bar Refaeli og var í sambandi með henni á árunum 2006 til 2011. Svo var það Victoria’s Secret-engillinn Erin Heatherton sem stal hjarta hans í tíu mánuði árið 2012. Árið 2014 felldi hann og þýska fyrirsætan Toni Garrn síðan hugi saman og entist það samband í átján mánuði. Sama ár og Leo og Toni hættu saman byrjaði leikarinn með Kelly Rorbach, sem einmitt starfar sem fyrirsæta, en samband þeirra entist stutt. 

Hér sjást Naomi og Leonardo með tískugúrúinum Donatellu Versace.Vísir / Getty Images
Þess má geta að háværar sögusagnir voru uppi um að Leonardo væri í sambandi með ofurfyrirsætunni Naomi Campbell um miðbik tíunda áratugar síðustu aldar. Ekkert var þó staðfest í þeim efnum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×