Lífið

Vala fékk nóg af ljótum ummælum á netinu og hringdi í Hilmar í beinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vala Eiríksdóttir er á FM957 alla virka daga.
Vala Eiríksdóttir er á FM957 alla virka daga.
Útvarpskonan Vala Eiríksdóttir er komin með nóg af neteinelti og leiðindum á samfélagsmiðlum og tók málin í sínar eigin hendur á útvarpsstöðinni FM957 í dag.

„Ég verð ekki oft reið en í gærkvöldi varð ég djöfull reið,“ sagði Vala í útvarpsþætti sínum í dag.

„Ég blandaði mér inn í samræður inni í hópnum Það sem enginn viðurkennir á Facebook. Þar var ágætur maður sem ákvað að fara í ljótar persónuárásir og kalla konu forljóta og fór ófögrum orðum um mig. Ég svaraði honum og minn maður var ekkert lengi að sjá að sér og biðjast afsökunar,“ segir Vala sem var nokkuð sátt við afsökunarbeiðnina og hringdi í manninn í beinni í dag.

Samtalið má heyra hér að neðan en maðurinn ber nafnið Hilmar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×