Lífið

Gísli Pálmi og fleiri á jólaís í brauðformi á Prikinu í kvöld

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Gísli Pálmi snýr aftur en hann hefur verið gríðarlega mikið í stúdíóinu upp á síðkastið.
Gísli Pálmi snýr aftur en hann hefur verið gríðarlega mikið í stúdíóinu upp á síðkastið. Fréttablaðið/Anton Brink
Það verður sett í fimmta gír á Prikinu í kvöld þegar ís í brauðformi fer í jólaskapið. Ís í brauðformi eru hipphoppkvöld sem hafa nú gengið í nokkur ár og þar hefur iðulega verið hægt að nálgast það besta í senunni í bland við alls kyns nýjungar sem hafa oftar en ekki fært sig yfir í besta flokkinn.

Í tilefni jóla verður einstaklega öflug dagskrá í boði þar sem bæði það gamla og góða og hið nýja og hungraða eiga sér sterka málsvara.

Fyrst og fremst ber að nefna Gísla Pálma sem snýr aftur úr smá fríi en hann er búinn að vera duglegur í stúdíóinu upp á síðkastið og því nokkuð líklegt að aðdáendur fái eitthvert nýtt efni frá honum í jólagjöf. Tiny fylgir fast á hæla hans, en er líka með glænýtt efni.

Svo eru það þrír minna þekktir listamenn sem þó eru farnir að láta að sér kveða. Birgir Hákon þreytir frumraun sína þetta kvöld, en hún hefur verið í undirbúningi lengi. Hinn dularfulli Yung Nigo sendi frá sér lagið Pluggið hringir fyrir um tveimur mánuðum og hefur það vakið athygli. Countess Malaise er búin að senda frá sér nokkur lög á árinu og var gestur í laginu PSYCHO með Cyber en einhverjir telja hana eiga frammistöðu ársins þar.

Leikar hefjast klukkan 21.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×