Lífið

Sýndu óvart beint frá viðskiptum með fíkniefni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frekar spaugilegt atvik.
Frekar spaugilegt atvik.
Viðskipti með fíkniefni fara oftast fram í mikilli leynd en áhorfendur FOX 25 sjónvarpsstöðvarinnar urðu aftur á móti vitni af mjög svo greinilegri sölu fíkniefna í beinni útsendingu í fréttatíma stöðvarinnar.

Þá mátti sjá fréttamann greina frá miklum snjóstormi í New York, en fyrir aftan hann voru tveir menn í hörkusamræðum.

Síðan þegar líður á útsendinguna skiptast menn á litlum poka og peningum og ganga síðan í sitthvora áttina.

Hér að neðan má sjá þetta spaugilega atvik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×