Körfubolti

NBA-leikmaður fékk trukk ofan í sundlaugina heima hjá sér

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Turner í leik með Portland.
Turner í leik með Portland. vísir/getty
Evan Turner, leikmaður Portland Trail Blazers, hefur líklega brugðið talsvert þegar það var allt í einu kominn trukkur ofan í sundlaugina hans.

Bílstjóri trukksins missti stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann fór út af veginum og rann niður brekku sem endaði ofan í sundlauginni hjá Turner. Það tókst að bjarga honum áður en illa fór en halda þurfti höfði hans upp úr vatninu á meðan hann var klipptur úr bílnum.





„Ég vissi ekkert um stöðuna á bílstjóranum en er feginn að heyra að hann sé á lífi,“ sagði Turner við fjölmiðla vestanhafs.

Alls koma átta björgunarmenn að aðgerðinni við að losa bílstjórann úr prísundinni. Bílstjórinn liggur nú á spítala og er sagður vera alvarlega slasaður.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×