Óútskýrður launamunur mælist í fyrsta sinn konum í vil hjá Orkuveitunni Kristín Ólafsdóttir skrifar 23. desember 2017 13:30 Enn ríkir þó nokkur kynjaskipting innan fyrirtækisins að sögn Sólrúnar en kynjamunur er greinilegur í störfum fyrirtækisins. Vísir/Pjetur/OR
Konur mældust með 0,2 prósent hærri laun en karlar hjá Orkuveitu Reykjavíkur um síðustu mánaðamót. Þetta er í fyrsta skipti sem óútskýrður kynbundinn launamunur mælist konum í vil hjá fyrirtækinu.Sólrún Kristjánsdóttir, starfsmannastjóri Orkuveitu Reykjavíkur.ORReyna að dansa báðum megin við línunaOrkuveita Reykjavíkur hefur unnið af kappi undanfarin ár við að útrýma kynbundnum launamun. Fyrirtækið hefur nú í nokkur skipti fengið árlega jafnlaunavottun frá jafnlaunaúttekt PwC. Í júní á þessu ári mældist óútskýrður kynbundinn launamunur 1,4 prósent körlum í vil. Um síðustu mánaðamót mældist munurinn hins vegar 0,2 prósent – og þá höfðu konur vinninginn. Sólrún Kristjánsdóttir, starfsmannastjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir í samtali við Vísi að Orkuveitan fagni þessum niðurstöðum. „Við höfum semsagt verið að vinna síðustu misseri að því, með fyrirtæki sem heitir PayAnalytics, að þróa tól sem við getum notað sjálf í sambærilegar greiningar og PwC,“ segir Sólrún. Í haust hafi svo verið tekin upp ný aðferð til greiningar á óútskýrðum, kynbundnum launamun. Þessum launamun vill útrýma alveg. „Í fyrsta skipti í þessari launakeyrslu fór launamunurinn hinum megin við núllið, sem þýðir að við erum með 0,2 prósent launamun konum í vil. Ástæðan fyrir því að við erum svona glöð með það er að launamunurinn verður náttúrulega aldrei núll prósent. Við viljum reyna að dansa báðum megin við línuna, það er eðlilegt,“ segir Sólrún. Hún segir hina nýju aðferð gera greiningu á launamuninum þægilegri og taki mun styttri tíma en áður. Fyrirtækið mun þó áfram senda gögn til PwC og fá þannig vottun óháðs aðila.Kynjaskipting ríkjandi sem jafnlaunavottanir geta ekki hróflað viðEnn ríkir þó nokkur kynjaskipting innan fyrirtækisins að sögn Sólrúnar en kynjamunur er greinilegur í störfum fyrirtækisins. Hún segir orkugeirann karllægan en meirihluti sérfræðinga hjá fyrirtækinu eru til að mynda karlar og karlar eru jafnframt 95 prósent iðnaðarmanna. Hlutföllin eru jöfn í hópi stjórnenda, eða því sem næst, en 51 prósent stjórnenda fyrirtækisins eru konur og þá eru konur meirihluta í skrifstofustörfum. Sólrún segir Orkuveituna vinna að því að leiðrétta þennan mun og leitist við að ráða konur í hefðbundin „karlastörf“ og öfugt. Í hópi ófaglærðra eru kynjahlutföllin einnig jöfn en innan þess hóps er þó mikil kynjaskipting, karlar vinna verkamannastörf og konur eru í ræstingum og matstofustörfum. Sólrún segir að fyrir nokkrum árum hafi lægri laun fengist fyrir kvennastörfin en sambærileg karlastörf. Fyrirtækið hafi nú leiðrétt það. „Að mínu mati er þetta aðalástæðan fyrir kynbundnum launamun í samfélaginu, það er að við réttlætum alltaf að störfin sem karlar sinna í meiri mæli séu betur borguð en störfin sem konur sinna í meiri mæli,“ segir Sólrún. „Allar jafnlaunagreiningar í heiminum munu ekki ná að útrýma þessu, því það eru fyrirtækin sjálf sem þurfa að flokka og ákveða verðmæti starfanna.“
Tengdar fréttir Launamunur kynjanna um sextán prósent á síðasta ári Munurinn hafði verið 17 prósent árið 2015. 24. október 2017 09:52 Starfsmatskerfi borgarinnar minnkar kynbundinn launamun Launamunurinn jókst hins vegar hjá þeim sem ekki falla undir starfsmat, t.d. kennurum. 10. júní 2017 12:08 Ráðherra vill meiri launahækkun til kvennastétta en annarra Þorsteinn Víglundsson telur æskilegt að kvennastéttir fái launahækkun í komandi kjaraviðræðum umfram aðra hópa. Formaður BHM segir gott að ráðherra sé kominn í lið með sér hvað það varðar. Hugmyndirnar séu þó augljóslega komnar fram núna í ljósi komandi kosninga. 16. október 2017 06:00 Mest lesið Sekta Árvakur um 1,5 milljónir króna vegna fjölda dulinna auglýsinga Neytendur Svona getur þú sagt Nei í vinnunni án þess að fá samviskubit Atvinnulíf Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Viðskipti erlent „Í dag fæ ég næstum því bara hrós við matarborðið“ Atvinnulíf Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2024 - kosning Samstarf Einstakt tækifæri til að sjá einn merkasta sportbíl sögunna - Porsche 911 Dakar Samstarf Áhorf á Eurovision hríðfellur Viðskipti innlent Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Viðskipti erlent Að endurskapa ásýndina á að vera skemmtileg vinna en ekki kvöð Atvinnulíf Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Aukið atvinnuleysi Kynning á yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Kaupa Íslensk verðbréf Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Einar hættir með Grillbúðina Hætta skerðingum til stórnotenda Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Ráðin forstöðumaður hjá OK Snýr aftur til Snjallgagna Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Sjá meira
Launamunur kynjanna um sextán prósent á síðasta ári Munurinn hafði verið 17 prósent árið 2015. 24. október 2017 09:52
Starfsmatskerfi borgarinnar minnkar kynbundinn launamun Launamunurinn jókst hins vegar hjá þeim sem ekki falla undir starfsmat, t.d. kennurum. 10. júní 2017 12:08
Ráðherra vill meiri launahækkun til kvennastétta en annarra Þorsteinn Víglundsson telur æskilegt að kvennastéttir fái launahækkun í komandi kjaraviðræðum umfram aðra hópa. Formaður BHM segir gott að ráðherra sé kominn í lið með sér hvað það varðar. Hugmyndirnar séu þó augljóslega komnar fram núna í ljósi komandi kosninga. 16. október 2017 06:00