Enski boltinn

Liverpool staðfestir komu Van Dijks

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Virgil van Dijk mun spila í treyju númer 4 hjá Liverpool.
Virgil van Dijk mun spila í treyju númer 4 hjá Liverpool. vísir/getty
Liverpool hefur staðfest að Virgil van Dijk gangi í raðir félagsins þegar félagaskiptaglugginn opnar á nýársdag.

Van Dijk kemur til Liverpool frá Southampton. Talið er að Liverpool borgi 75 milljónir punda fyrir Van Dijk sem gerir hann að dýrasta varnarmanni allra tíma.

Van Dijk gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Liverpool þegar liðið sækir Burnley heim á nýársdag.

Hinn 26 ára gamli Van Dijk lék með Southampton í tvö ár og vakti mikla athygli fyrir spilamennsku sína.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×