Ráðist á bænahús gyðinga í Svíþjóð Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. desember 2017 06:00 Löggæsla hefur verið hert í kringum bænahús gyðinga víða í Svíþjóð. Gyðingar víðsvegar um heiminn upplifa ógn eftir atburði síðustu viku. vísir/epa „
Ég er mjög hugsandi yfir árásinni á bænahúsið í Gautaborg á laugardaginn og að það hafi verið kynt undir þetta ofbeldi gegn gyðingum á fundi mótmælenda í Málmey,“ sagði Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, í yfirlýsingu í gær. Ráðist var á bænahúsið með bensínsprengjum á meðan ungmennasamkoma fór þar fram. Áður höfðu farið fram hörð mótmæli gegn gyðingum í Málmey, þar sem um 200 manns voru samankomnir.Stefan Löfven, formaður Jafnaðarflokksins í Svíþjóð„Það er ekki pláss fyrir neitt gyðingahatur í samfélagi okkar. Árásarmennirnir þurfa að svara fyrir þetta. Öll lýðræðisöfl verða nú að vinna saman í þágu opins og frjálslynds samfélags, þar sem allir finna öryggistilfinningu,“ segir Stefan Löfven. Leiðtogi gyðinga í Gautaborg, Allan Stutzinsky, var viðstaddur þegar árásin var gerð á bænahúsið. „Við vissum vel að öryggi samfélags gyðinga væri ógnað, en það er samt áfall að þetta skuli gerast,“ segir Stutzinsky. Í síðustu viku viðurkenndi Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels og flutti sendiráð Bandaríkjanna frá Tel Avív til Jerúsalem. Ákvörðunin hefur valdið talsverðu uppnámi í Mið-Austurlöndum og annars staðar í samfélagi araba. Stutzinsky segist ekki í vafa um að árásin hafi verið gerð í beinum tengslum við ákvörðun Bandaríkjaforseta. Öryggið hefur verið hert mjög mikið í kringum bænahús gyðinga víða í Svíþjóð eftir árásina um helgina, að því er sænska ríkisútvarpið (SVT) greinir frá. Lögreglan í Málmey hefur líka aukið öryggisviðbúnað sinn af ótta við að fleiri atvik kunni að verða. Lögreglan í Gautaborg gerði ítrekaða leit að hinum grímuklæddu árásarmönnum sem köstuðu bensínsprengjunni og á sunnudagsmorgun voru þrír handteknir. Sænska ríkisútvarpið sagði óljóst hvort fleiri hefðu komið að árásinni. Vitni hafa þó sagt að þau hafi séð í kringum 20 grímuklædda menn með svokallaða molotovkokteila sem hent var inn í garðinn við bænahúsið. Segir Bandaríkin óvin Palestínumanna Víða hafa brotist út átök vegna ákvörðunar Donalds Trump um að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísrael. Breska ríkisútvarpið, BBC, greindi til dæmis frá því að mótmælendur komu saman nærri sendiráði Bandaríkjanna í Beirút í Líbanon um helgina. Þeir voru vopnaðir steinum og kveiktu elda á götum nærri sendiráðinu. Öryggissveitir beittu táragasi gegn mótmælendum. Hanna Gharib, leiðtogi Kommúnistaflokksins í Líbanon, sagði að Bandaríkin væru óvinir Palestínumanna.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Fleiri fréttir Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka Sjá meira