Handbolti

Stórsigur hjá Kiel

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Alfreð á hliðarlínunni
Alfreð á hliðarlínunni vísir/getty
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel unnu öruggan sigur á Huttenberg í þýsku Bundesligunni í handbolta í kvöld.

Það var jafnt með liðunum til að byrja með þar til um miðjan fyrri hálfleik þegar heimamenn fóru að slíta sig aðeins frá Huttenberg og fóru með fjögurra stiga forystu í hálfleik 17-30.

Kiel byrjaði seinni hálfleikinn betur og komst í sex stiga forystu. Heimamenn héldu forystunni út leikinn, og bættu í smátt og smátt. Þegar fimm mínútur lifðu af leiknum voru þeir komnir í átta stiga forystu, 30-22. Lokatölur urðu 33-24.

Miha Zarabec var markahæstur í liði Kiel með 9 mörk. Kiel hefur valdið vonbrigðum á tímabilinu, og er aðeins í áttunda sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×