Sport

Róbert heimsmeistari í fjórsundi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Róbert Ísak er búinn að næla sér í gull og silfur á HM.
Róbert Ísak er búinn að næla sér í gull og silfur á HM. mynd/ÍF
Róbert Ísak Jónsson varð í nótt heimsmeistari í 200 metra fjórsundi (S14, þroskahamlaðir) á HM sem nú stendur yfir í Mexíkó.

Róbert synti á 2:19.34 mínútum og hafði þar betur í baráttunni gegn Suður-Kóreumanninum, Cho Wonsang.

Wonsang var með forystuna eftir flug, bak og bringu en Róbert náði honum á síðasta snúning og stakk svo af á skriðsundskaflanum og vann glæsilegan sigur.

Þá vann Sonja Sigurðardóttir til bronsverðlauna í 100 metra skriðsundi í flokki S4 (hreyfihamlaðir) en í hennar keppni voru bein úrslit og þrír keppendur. Sonja kom í bakkann á 2:34.77 mínútum.

Íslenski hópurinn hefur því unnið til fernra verðlauna til þessa á mótinu, eitt gull, eitt silfur og tvenn bronsverðlaun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×