Tónlist

Ed Sheeran og Aron Can vinsælastir á Íslandi

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Íslendingar hlustuðu mest á Ed Sheeran og Aron Can á árinu sem er að líða.
Íslendingar hlustuðu mest á Ed Sheeran og Aron Can á árinu sem er að líða. Vísir
Ed Sheeran er ótvíræður konungur streymisveitunnar Spotify árið 2017 samkvæmt árslistum sem birtir voru í gær. Sheeran er vinsælasti listamaðurinn, vinsælasti karllistamaðurinn og hann á vinsælasta lagið, Shape of You.

Sumarslagarinn Despacito fylgir þar fast á hæla Sheeran en nær þó ekki að velta honum úr sessi.

Sheeran er einnig vinsælasti listamaðurinn hjá íslenskum notendum Spotify. Fast á hæla hans fylgir rapparinn Aron Can og nýliðarnir JóiPé og Króli næla sér í þriðja sætið. Kanadíski rapparinn Drake er svo í fjórða sæti og Emmsjé Gauti er næsti listmaðuar á lista.

Athygli vekur að konur eru ekki mjög sýnilegar á topp listum, hvorki hér heima né þegar litið er á heimslistann. Kona sést fyrst í ellefta sæti íslenska listans í laginu Neinei með Áttunni þar sem Sonja Valdín syngur. Næst sést kona í fimmtánda sæti. Það er Taylor Swift ásamt Zayn í laginu I Don‘t Wanna Live forever. Í 21. og 22. sæti sjást svo Selena Gomez og Zara Larsson, báðar koma þær fram með öðrum listamönnum. 

Á heimslistanum er Taylor Swift ásamt Zayn fyrsta konan sem sést á listanum í tíunda sæti. Alessia Cara er í því þrettánda ásamt Zedd. Næsta konan á listanum er söngkonan Anne-Marie ásamt hljómsveitinni Clean Bandit og rapparanum Sean Paul í 19. sæti og þar á eftir er Julia Michales í 26. sæti.

Vinsælustu listamennirnir (Ísland)

Ed Sheeran

Aron Can

JóiPéxKróli

Drake

Emmsjé Gauti

Vinsælustu lögin (Ísland)

Despacito Remix – Luis Fonsi, Daddy Yankee, Justin Bieber

Shape of You – Ed Sheeran

Fullir Vasar – Aron Can

Ég vil það – JóiPé og Chase

B.O.B.A – JóiPéxKróli

Vinsælustu listamennirnir

Ed Sheeran

Drake

The Weeknd

Kendrick Lamar

The Chainsmokers

Vinsælustu konurnar:

Rihanna

Taylor Swift

Selena Gomez

Ariana Grande

Sia

Vinsælustu karlarnir:

Ed Sheeran

Drake

The Weeknd

Kendrick Lamar

The Chainsmokers

Vinsælustu hljómsveitirnar:

Coldplay

Imagine Dragons

Maroon 5

Linkin Park

Migos

Vinsælustu lögin (allur heimurinn)

Shape of You – Ed Sheeran

Despacito Remix – Luis Fonsi, Daddy Yankee, Justin Bieber

Despacito (Featuring Daddy Yankee) – Luis Fonsi, Daddy Yankee

Something Just Like This – The Chainsmokers, Coldplay

I‘m the One – DJ Khaled, Justin Bieber, Quavo, Chance The Rapper, Lil Wayne






Fleiri fréttir

Sjá meira


×