Llorente opnaði markareikning sinn hjá Tottenham í fjarveru Kane

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fernando Llorente fagnar marki sínu.
Fernando Llorente fagnar marki sínu. Vísir/Getty
Fernando Llorente skoraði sitt fyrsta mark fyrir Tottenham í 3-0 sigri á Apoel á Wembley í lokaleik liðsins í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Tottenham var búið að vinna riðilinn fyrir leikinn en þessi sigur þýðir að liðið fékk sextán stig af átján mögulegum í riðlakeppninni.

Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Tottenham, gerði átta breytingar á byrjunarliði sínu og menn eins og Harry Kane og Christian Eriksen fengu frí. Michel Vorm, Serge Aurier, Danny Rose, Juan Foyth, Harry Winks, Moussa Sissoko, Nkoudou og Fernando Llorente komu allir inn og það skipti ekki máli.

Fernando Llorente kom Tottenham í 1-0 á 20. mínútu eftir fyrirgjöf frá Serge Aurier og laglegan snúning í teignum.

Heung-min Son kom Tottenham síðan í 2-0 á 38. mínútu eftir sendingu frá Fernando Llorente.

Georges N'Koudou innsiglaði síðan sigurinn á 80. mínútu eftir laglegt hlaup inn í teig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira