Körfubolti

Sjötti sigur Keflavíkur í röð en Valskonur áfram á toppnum | Úrslitin í kvennakörfunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Danielle Victoria Rodriguez og Kristen Denise McCarthy fóru fyrir sínum liðum í kvöld.
Danielle Victoria Rodriguez og Kristen Denise McCarthy fóru fyrir sínum liðum í kvöld. Vísir/Ernir
Keflavík, Valur og Stjarnan unnu öll leiki sína í Domino´s deild kvenna í körfubolta í kvöld og styrktu um leið stöðu sína í þremur efstu sætum deildarinnar.

Valskonur hafa áfram tveggja stiga forystu á Keflavík sem er síðan tveimur stigum á undan Stjörnunni sem er í þriðja sætinu.

Snæfellkonur steinlágu í Garðabænum í kvöld eftir að hafa unnið tvo sigra í röð í leikjunum á undan. Stjörnukonur voru í miklu stuði og hafa unnið báða leiki sína á móti Snæfelli á þessu tímabili.

Danielle Rodriguez var einni stoðsendingu frá þrennunni í 22 stiga sigri Stjörnunnar á Snæfelli en hún endaði með 29 stig, 10 fráköst og 9 stoðsendingar. Ragna Margrét Brynjarsdóttir (15 stig og 11 fráköst) og Bríet Sif Hinriksdóttir 13 (stig) áttu líka flottan leik.

Guðbjörg Sverrisdóttir skoraði 22 stig í 19 stiga sigri Valskvenna í Ljónagryfjunni í Njarðvík en Hallveig Jónsdóttir var með 19 stig.

Brittanny Dinkins var með þrennu í Borgarnesi (22 stig, 10 fráköst og 11 stoðsendingar) þegar Íslandsmeistarar Keflavíkur unnu sinn sjötta sigur í röð.



Úrslit og stigaskor leikmanna í Domino´s deild kvenna í kvöld:

Njarðvík-Valur 63-82 (14-20, 16-23, 18-22, 15-17)

Njarðvík: Shalonda R. Winton 30/20 fráköst, Karen Dögg Vilhjálmsdóttir 9, Erna Freydís Traustadóttir 7, Hulda Bergsteinsdóttir 6/7 fráköst, Hrund Skúladóttir 6, Heiða Björg Valdimarsdóttir 3, Ása Böðvarsdóttir-Taylor 2, María Jónsdóttir 10 fráköst, Björk Gunnarsdótir 11 stoðsendingar.

Valur: Guðbjörg Sverrisdóttir 22/5 fráköst, Hallveig Jónsdóttir 19, Kristrún Sigurjónsdóttir 11, Alexandra Petersen 11/9 fráköst/11 stoðsendingar, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir 5/6 fráköst, Dagbjört Samúelsdóttir 5, Ragnheiður Benónísdóttir 4, Kristín María Matthíasdóttir 3/4 fráköst, Ásta Júlía Grímsdóttir 2/5 fráköst/3 varin skot.



Skallagrímur-Keflavík 73-87 (19-22, 15-23, 18-20, 21-22)

Skallagrímur: Carmen Tyson-Thomas 31/14 fráköst/6 stoðsendingar, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 18/10 fráköst/5 stoðsendingar, Gunnhildur Lind Hansdóttir 9, Bríet Lilja Sigurðardóttir 5/7 fráköst, Guðrún Ósk Ámundadóttir 4, Jeanne Lois Figueroa Sicat 4, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 2.

Keflavík: Brittanny Dinkins 22/10 fráköst/11 stoðsendingar, Thelma Dís Ágústsdóttir 15/12 fráköst, Erna Hákonardóttir 13, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 10/5 stoðsendingar, Þóranna Kika Hodge-Carr 6/7 fráköst, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 6/6 fráköst, Birna Valgerður Benónýsdóttir 4, Kamilla Sól Viktorsdóttir 3, Irena Sól Jónsdóttir 3, Katla Rún Garðarsdóttir 3, Anna Ingunn Svansdóttir 2.



Stjarnan-Snæfell 75-53 (20-13, 24-10, 19-12, 12-18)

Stjarnan: Danielle Victoria Rodriguez 29/10 fráköst/9 stoðsendingar, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 15/11 fráköst, Bríet Sif Hinriksdóttir 13/4 fráköst, María Lind Sigurðardóttir 8/5 fráköst, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 5/4 fráköst, Aldís Erna Pálsdóttir 3, Jenný Harðardóttir 2/9 fráköst.

Snæfell: Kristen Denise McCarthy 30/18 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir 11/5 fráköst, Júlia Scheving Steindórsdóttir 4, Rebekka Rán Karlsdóttir 4/4 fráköst, Alda Leif  Jónsdóttir 2/4 fráköst, Sara Diljá Sigurðardóttir 2/4 fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×