Hætti í lögfræðinámi eftir að hafa verið illilega áreitt af kennaranum Ingvar Þór Björnsson skrifar 7. desember 2017 23:38 Í yfirlýsingunni kemur fram að kvenfyrirlitning, kynbundið og kynferðislegt ofbeldi sé vandamál í öllum lögum samfélagsins, einnig innan réttarvörslukerfisins. Vísir/Getty
Konur innan réttarvörslukerfisins sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu í kvöld undir yfirskriftinni „Þögnin rofin.“ Í yfirlýsingunni kemur fram að kvenfyrirlitning, kynbundið og kynferðislegt ofbeldi sé vandamál í öllum lögum samfélagsins, einnig innan réttarvörslukerfisins. Þær krefjast þess að vinna gegn kynbundnu ofbeldi og áreiti verði sett í forgang og að allir vinnuveitendur taki ábyrgð á að uppræta vandamálið. 156 konur skrifa undir yfirlýsinguna en henni fylgja 45 reynslusögur.Fór með hendurnar inn á nemanda með agressífum hætti fyrir framan aðra nemendur Ein kona segir frá því þegar hún var í laganámi og farið var í vísindaferð til sýslumanns á landsbyggðinni. „Að lokinni vísindaferðinni var haldið á bar í borginni, kennarinn fór með. Ég fór snemma heim en frétti af því strax eftir helgina að skólasystir mín hafði verið áreitt illilega af kennaranum. Meðal annars fór hann með hendurnar inn á hana með agressífum hætti á barnum fyrir framan aðra nemendur.“ Segir hún að skólasystirin hafi verið mjög slegin þegar hún sagði henni frá þessu. „Svo slegin að hún gat ekki mætt í skólann, enda átti hún að sitja undir fræðslu þessa kennara um lögfræðileg álitaefni. Hún fór heim. Hún snéri aldrei til baka.“ Konan segir í frásögninni að hún og fleiri nemendur hafi farið fleiri ferðir til skrifstofustjóra deildarinnar og reynt að fá fram réttlæti fyrir skólasystur okkar en allt hafi komið fyrir ekki. „Þeirra afstaða: Orð á móti orði getur aldrei leitt til refsingar fyrir kennarann...“Bauðst ágætis einkunn af kennara með „einkatímum“Önnur kona segir frá því að henni hafi boðist góð einkunn með „einkatímum.“ „Þegar ég var laganemi bauðst mér einu sinni góð einkunn í valnámskeiði af kennara sem var einnig starfandi í einkageiranum. Árangurinn myndi nást með „einkatímum.“ Ég þáði ekki boðið og tók ekki námskeiðið svo það reyndi aldrei á hvort að það væri alvara á bak við tilboðið þó það hafi síðar verið ítrekað.“ Í annarri reynslusögu er lýst öðru atviki sem átti sér stað í lagadeild. Segir kona frá því að nokkrir karlkyns skólafélagar hafi setið fyrir utan lesstofuna og verið að rökræða dóm. „Ég fer að blanda mér í umræðuna og eftir einhverja stund legg ég eitthvað til málanna sem strákunum þótti erfitt að svara svo viðbrögðin voru orðrétt: „Æji, þarft þú ekki bara að fara heim að elda eða eitthvað?““ Enn önnur kona segir frá því þegar starfandi lögmaður og kennari í refsirétti sagði: „Við sleppum því að fjalla um hlutverk réttargæslumanns, enda óþarft hlutverk og kellingastarf.“Segir frá því þegar varðstjóri í fangelsi kleip í rass hennar fyrir framan fanganaEin kona segir frá því þegar hún starfaði sem fangavörður í fangelsi eitt sumar meðfram laganámi. „Samstarfsmennirnir voru 95% karlmenn og fangarnir 100% karlmenn,“ segir hún. „Ég átti marga vini þarna og þar á meðal var varðstjóri sem var ca. 20 árum eldri en ég. Eitt kvöldið fórum við saman í lyfjagjöf, s.s. rölt um alla gangana að gefa kvöldlyfin. Þegar við erum að koma inn í klefa eins fangans finn ég að varðstjórinn klípur í rassinn á mér. Ég sneri mér við, því ég ætlaði ekki að trúa því að þessi maður, sem ég taldi ágætis vin og kunningja, hafi gert þetta og það innan um ca. 10 fanga. En jú þarna stóð hann glottandi,“ segir hún. Önnur kona segir frá áreitni sem hún varð fyrir í lögreglunni. „Tvítug byrjaði ég í lögreglunni og hef starfað þar í tæp 40 ár. Að hugsa til baka og það sem maður lét yfir sig ganga án þess að þora að mótmæla er varla rithæft,“ skrifar hún. Segir hún að kynferðisleg áreitni hafi verið daglegt brauð og að hún hafi þurft að búa sig undir það, eins og hægt var, áður en mætt var á vaktina. „Verst var þegar maður var skráður ein í lögreglubíl með einhverjum sem ítrekað reyndi að kyssa mann þrátt fyrir mótmæli. Ég man að ég óskaði eftir því að vera ekki skráð með ákveðnum tæplega miðaldra manni þar sem hann gekk mjög langt og fékk ég að heyra að konum væri ekki treystandi í lögreglu. Því var snúið þannig við að ég sem lögreglukona treysti mér ekki að fara í útköll, það var ekki hlustað á mig þegar ég sagði hvað hafði gerst. Kynferðisleg áreitni var ekki talin stórmál og mætti ég búast við slíku þar sem ég kaus að vera innan um alla þessa karlmenn,“ segir hún. Þá segir önnur kona sem starfað hefur innan lögreglunnar að samstarfsmaður hennar hafi ítrekað vísað til kvenna í hvorugkyni. „Að hans sögn þurfti að „passa þetta“, „þetta gat ekki unnið“ og „þetta voru gagnslausir lögreglumenn“ og þar fram eftir götunum. Sama hvað ég leiðrétti hann oft. Einnig var okkur tilkynnt sem heild að við værum síður greindar en karlar, reglulega með kaffinu. Auk þess að vera nokkrum sinnum strokið um bakið og axlirnar af mönnum sem ég þekki lítið sem ekkert til.“Allar frásagnirnar má lesa hér.Eins og kom fram á Vísi í dag verða #MeToo sögur lesnar upp á viðburðum á þremur stöðum á landinu á sunnudag. Ætla konur innan réttarvörslukerfisins að taka þátt í þeim viðburði.
Mest lesið Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Miklar breytingar á fylgi fyrir kappræður Stöðvar 2 í kvöld Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Innlent Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Fleiri fréttir Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Sjá meira