Glamour

Sjómennskan er ekkert grín hjá Chanel

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Karl Lagerfeld fór aftur á staðinn þar sem hann fæddist, Hamborg í Þýskalandi, fyrir vetrarlínu tískuhússins 2018. Flíkurnar voru margar hverjar mjög álitlegar, eins og prjónapeysan fyrir

alla fjölskylduna, úr skoskri kasmírull.

Sýningin fór fram í nýrri byggingu hönnunarteymisins Herzog DeMeuron, með útsýni yfir höfnina. Innblásturinn frá höfninni og sjómennsku mátti svo greina í sýningunni í smáatriðum eins og kaskeitum, bróderuðum akkerum og gámatöskum.

Hér er brot af því besta sem okkur fannst standa upp úr frá Chanel

 

Gámatöskur

Töskurnar sem voru áberandi á sýningunni litu út eins og vöruflutningsgámar, að sjálfsögðu með stóru Chanel merki.

Mary Poppins - skór

Kvenlegir hælaskór með reimum, skreyttir með perlum og mjórri tá.

Gróf prjónapeysa

Dökkblá prjónapeysa sem mátti sjá í ýmsum útgáfum á pallinum og fyrir konur, karla og börn. Minnti óneitanlega á duggarapeysuna frá Ellingsen. Hinn sjö ára Hudson Kroenig, guðsonur Karl Lagerfeld, stal eins og venjulega senunni.

Útvíðar og stuttar buxur

Er þetta snið komið til að vera? Karl bauð upp á þessar útvíðu og stuttu buxur í ull, gallaefni og glansandi efni.

Fléttur og svarta slaufur

Er jólagreiðslan komin? Snillingurinn Sam McKnight sá um hárið á fyrisætunum. Fastar fiskifléttur og síðir svartir silkiborðar sem komu mjög vel út.

STELUM STÍLNUM






×