Glamour

Silkiklæddir kúrekar hjá Calvin Klein

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Sýning Calvin Klein á tískuvikunni í New York var í gærkvöldi, þar sem Raf Simons, listrænn stjórnandi tískuhússins, stjórnaði för. Þemað var Ameríka, og var innblásturinn fenginn frá kúrekum, Andy Warhol, klappstýrum og hryllingsmyndum. 

Að horfa á sýninguna var eins og að vera staddur á listasýningu, þar sem verk Andy Warhol voru prentuð á ýmsar flíkur, frá bolum og upp í kjóla. Simons hélt áfram að vinna með plast eins og hann gerði fyrir vetrarlínu sína, en plastklæddir kjólar tóku nú við af kápunum. 

Hönnuðir í dag eru farnir að sameina karla-og kvenfatalínur sínar, og var oft ekki mikill munur á flíkunum. Kúrekaskyrtur og buxur voru úr glansandi fallegu silki í þetta skiptið, og er augljóst að sett hefur verið nýtt trend hér með. Þessar skyrtur eru komnar á óskalistann.

Vísunin í klappstýrur kom fram í miklu og síðu kögri á kjólum og virðist eins og hönnuðir ætla að færa sig úr fjaðraþema vetursins og yfir í kögrið fyrir sumarið. 






×