Innlent

Búið að opna fyrir tilnefningar til manns ársins 2017

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Landsliðshópurinn hjá karlalandsliðinu í fótbolta var maður ársins í fyrra.
Landsliðshópurinn hjá karlalandsliðinu í fótbolta var maður ársins í fyrra.
Lesendum Vísis og hlustendum Bylgjunnar gefst færi á að útnefna Mann ársins 2017 nú um áramótin. Opnað hefur verið fyrir tilnefningar og er öllum frjálst að senda inn. 

Tekið er við tilnefningum á vefsvæði Bylgjunnar en frestur til að tilnefna rennur út föstudaginn 15. desember. Ritstjórn Vísis og Reykjavík Síðdegis fara sameiginlega yfir innsendar tilnefningar og í kjölfarið hefst atkvæðagreiðsla. Einstaklingurinn verður heiðraður í árlegum áramótaþætti Reykjavík árdegis á gamlársdag.

Í tilnefningunni þarf nafn viðkomandi að koma fram auk upplýsinga um hvers vegna viðkomandi á skilið að vera útnefndur sem Maður ársins 2017. Farið verður yfir tilnefningar með tilliti til rökstuðnings og fjölda tilnefninga sem hver og einn fær. Atkvæðagreiðsla fer svo fram á Vísi yfir jólin.

Landsliðshópur Íslands á Evrópumótinu í Frakklandi sumarið 2016 var maður ársins í fyrra. Hér má sjá þau tíu sem tilnefnd voru sem maður ársins í fyrra. Tilnefningum rigndi inn frá lesendum.

Tilnefndu þína konu, karl eða hóp hér að neðan.




Tengdar fréttir

Eiríkur Ingi maður ársins á Bylgjunni

Eiríkur Ingi Jóhannsson, sjómaður sem komst af eftir hryllilegan sjóskaða fyrr á árinu, er maður ársins á Bylgjunni árið 2012. Kosning fór fram bæði á Vísir.is sem og á Bylgjunni þar sem hlustendur hringdu inn og greiddu atkvæði sitt. Eiríkur Ingi fór með afgerandi sigur í kosningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×