Handbolti

Þrjú íslensk mörk í stórsigri Kristianstad

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Gunnar Steinn Jónsson
Gunnar Steinn Jónsson vísir/getty
Þrjú íslensk mörk hjálpuðu Kristianstad leggja Ystads að velli í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt mark og Gunnar Steinn Jónsson tvö. Ólafur Guðmundsson er enn fjarri góðs gamans vegna meiðsla.

Gestirnir í Ystads skoruðu fyrsta markið og héldu í við topplið Kristianstad lengi vel í fyrri hálfleik. Þeir komust aftur yfir um miðjan hálfleikinn, en það varði ekki lengi og Kristiandstad tók við sér og fór með fimm marka forystu í hálfleik.

Eftir það var ekki aftur snúið og fór leikurinn að lokum þannig að Kristianstad sigraði með ellefu mörkum, 39-28.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×