Enski boltinn

Kraftaverkamaðurinn O'Neill líklegastur til að taka við West Brom

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Michael O'Neill er eftirsóttur.
Michael O'Neill er eftirsóttur. vísir/getty
Michael O'Neill er líklegastur til að taka við West Brom samkvæmt veðbönkum á Englandi.

West Brom rak Tony Pulis í morgun og er því í stjóraleit.

O'Neill þykir hafa náð eftirtektarverðum árangri sem landsliðsþjálfari N-Írlands. Hann er eftirsóttur og Skotar vilja t.a.m. fá hann sem næsta landsliðsþjálfara.

Næstur á blaði veðbanka er Derek McInnes, stjóri Aberdeen í Skotlandi. Hann lék með West Brom á árunum 2000-03.

Sam Allardyce er einnig ofarlega á lista sem og Alan Pardew. Síðasta starf þeirra beggja var hjá Crystal Palace.

Gary Megson er einnig á blaði en hann tók tímabundið við West Brom.


Tengdar fréttir

Pulis rekinn

Enska úrvalsdeildarliðið West Brom hefur rekið Tony Pulis úr starfi knattspyrnustjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×