Séra Jón Stjórnarmaðurinn skrifar 22. nóvember 2017 15:30
Fróðlegt var að lesa samtal Geirs H. Haarde og Davíðs Oddssonar sem átti sér stað þann 6. október 2008 eða sama dag og neyðarlögin svokölluðu tóku gildi. Þar ræddu þeir félagar 500 milljóna evra neyðarlánveitingu til Kaupþings, sem samkvæmt seðlabankastjóranum Davíð myndi valda því að bankinn yrði „kominn inn að beini“. Með öðrum orðum, lánveitingin til Kaupþings varð endanlega til þess að tæma gjaldeyrisforða Seðlabankans. Enn meiri athygli vekur þó að þeir Davíð og Geir virðast sammála um að ólíklegt sé að lánið fáist greitt til baka, en Davíð lætur hafa eftir sér að orð Kaupþingsmanna um að lánið verði endurgreitt að nokkrum dögum liðnum séu „ósannindi“ eða „óskhyggja“. Með öðrum orðum virðist Davíð hafa veitt lánið en verið þess fullviss að það fengist aldrei endurgreitt. Við þetta kynni einhver að staldra en í dómum sem fallið hafa eftir hrun hefur mikið verið fjallað um hugtakið umboðssvik, en í einfaldri mynd má segja að það snúist um að binda annan mann, stofnun eða fyrirtæki við löggerning sem viðkomandi myndi annars ekki vilja vera bundinn af. Nú mætti telja að hugtakinu hafi upprunalega verið ætlað að ná til manna sem stunda slíkt af einbeittum ásetningi. Eftir hrun hefur hins vegar fjölda bankamanna verið varpað í fangelsi á grundvelli þess að þeim hafi „ekki mátt dyljast“ eða að þeir hefðu „mátt vita“ að tilteknar lánveitingar myndu tapast. Algerlega hefur verið skautað fram hjá því að lánveitingum fylgir eðli málsins samkvæmt áhætta. Ekki verður þó annað skilið af orðum fyrrverandi seðlabankastjóra en að hann hafi verið þess fullviss að lánið væri tapað, en samt haldið sínu striki. Ekki verður auðveldlega séð hvers vegna annað ætti að gilda um seðlabankastjórann, sem höndlar með almannafé, en bankamennina. Samt tók það sérstakan saksóknara einungis viku að hvítþvo Davíð og Geir vegna lánveitingarinnar til Kaupþings. Nú er bara tvennt í stöðunni. Annaðhvort var Davíð jafn sekur um umboðssvik og bankamennirnir, eða að dómarnir eftir hrun hafa verið á villigötum. Hvað sem því líður er ljóst að Davíð fékk sérmeðferð. Hverju ætli sæti?Stjórnarmaðurinn er sigldur innherji með puttann á púlsinum. Stjórnarmaðurinn skrifar í Markaðinn í Fréttablaðinu á miðvikudögum og liggur ekki á skoðunum sínum um menn og viðskiptaleg málefni.
Mest lesið Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Viðskipti innlent „Oft sömu aðilar og verða öskureiðir ef þú rangkynjar köttinn þeirra eða hundinn“ Atvinnulíf Vopnfirska kjötsúpan stoltið hjá efnahagsráðgjafa ríkistjórnarinnar Atvinnulíf Merkum áfanga fagnað í verslun BYKO á Selfossi Samstarf „Gátum ekki setið og beðið endalaust“ Neytendur Hægir á verðhækkunum matvöru Neytendur Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Viðskipti innlent „Ég var pæja sem vildi ekki vera með ljótan gulan hatt á hausnum“ Atvinnulíf Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Viðskipti innlent Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt AGS leggur til skattahækkanir Gerður ráðin til BBA//Fjeldco Þjóðin hafi tekið rétta ákvörðun í Icesave málinu Úr tveggja milljarða tekjum í fimm en töpuðu þrjátíu Ingu Tinnu hjá Dineout gjörsamlega ofboðið Eignast Securitas að fullu Netflix, Stöð2+, Prime og Disney greiði til menningar Segja markaðstorg blóðmjólka fyrirtæki Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Sjá meira