Innlent

Óttarr segir mál matreiðslunemans ömurlegt

Óttarr Proppé, fráfarandi heilbrigðisráðherra og formaður nefndar sem samdi drög að nýjum útlendingalögum.
Óttarr Proppé, fráfarandi heilbrigðisráðherra og formaður nefndar sem samdi drög að nýjum útlendingalögum.
„Þetta er ömurlegt mál og ekki í takti við vilja nefndarinnar þegar við vorum að vinna þetta,“ segir Óttarr Proppé. Hann var formaður þverpólitískrar þingmannanefndar sem samdi drög að nýjum útlendingalögum á þar síðasta kjörtímabili.

Kærunefnd útlendingamála hefur komist að þeirri niðurstöðu að víetnamski matreiðsluneminn Chuong Le Bui skuli ekki fá námsmannadvalarleyfi hér á landi. Ástæðan er sú að í nýjum útlendingalögum er iðnnám ekki skilgreint sem nám.

Óttarr segir að það hafi verið ætlun nefndarinnar að tekið yrði tillit til iðnnáms. „Þetta er lesið miklu þrengra af kærunefndinni heldur en við hefðum gert ráð fyrir í þingmannahópnum,“ segir Óttarr.

Óttarr segir að þingmannanefndin hafi lagt til að skipuð yrði nefnd til að fylgja lögunum og innleiðingunni eftir til þess að geta tekið á hnökrum sem fyrirsjáanlegt var að gætu komið upp á í þessari risastóru löggjöf. Sú nefnd hefur ekki verið skipuð. Óttarr leggur áherslu á að nýju Útlendingalögin séu gríðarlega flókin.

„Ég held að lagabókstafurinn sé vel yfir 100 síður,“ segir hann og bendir á að þetta sé með flóknustu og umfangsmestu lagasetningum sem hafi verið gerð. „Þannig að þrátt fyrir tiltölulega góðan undirbúning var alltaf vitað að við yrðum að læra af þessu og breyta hlutunum í framkvæmd.“

Chuong Le Bui er gert að yfirgefa Ísland á næstu dögum, samkvæmt úrskurði kærunefndar útlendingamála. Hún hefur sótt um frestun réttaráhrifa og þarf að rökstyðja þá frestun þann 27. nóvember.vísir/stefán
Á undanförnum árum hefur verið gripið til ýmissa ráðstafana, bæði í ráðuneytunum og á Alþingi til að bæta lagasetningu. En mistökin gerast enn. „Ég held að það hafi allt verið í rétta átt. Það hefur sömuleiðis verið byggt undir getu og styrk þingsins,“ segir Óttarr og bendir á að sérfræðiþjónusta á nefndarsviði hafi verið aukin.

„Það sem kannski hefur verið landlægt á Íslandi er að löggjöf hefur oft verið unnin hratt miðað við í Evrópu, þar sem hefur verið siður að lagabreyting hefur verið unnin í löngu ferli og jafnvel á nokkrum árum,“ segir Óttar.

Hann segir að margt hafi verið til fyrirmyndar við vinnslu nýju útlendingalaganna. Málið hafi verið unnið þverpólitískt og í samstarfi við þá sem vinna í faginu. „Það var að mörgu leyti til fyrirmyndar þó að kannski megi segja að í þessu tilfelli hefðu lögin orðið betri ef við hefðum verið einu til tveimur árum lengur að vinna ferlið. En það var bara eiginlega ekki í boði,“ segir Óttarr.

Óttarr segir Íslendinga vera að sumu leyti því marki brennda að vera fámenn þjóð með tiltölulega veikar stofnanir til að takast á við jafn flókin verkefni í lagasetningu og stærri lönd. „Það þýðir að við erum í mörgum tilvikum að reyna á þanþolið og getuna.“ 

Efast um að mistök hafi verið gerð

Nýju útlendingalögin voru unnin á þar síðasta kjörtímabili. Sigríður Andersen dómsmálaráðherra hefur sagt að sú skilgreining sem kemur fram á námi sé of þröng og miklu þrengri en löggjafarviljinn hafi staðið til. Í ráðuneytinu fer fram undirbúningur að breytingu á lögunum.

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, dregur í efa að um mistök hafi verið að ræða. „Ég er nú ekkert viss um að þetta hafi verið mistök. Ég held að þeir sem voru að semja þetta frumvarp hafi ekkert litið á nám nema háskólanám og starfsnám væri bara ekki þar inni í þeirra huga. En það kann að vera að þetta hafi verið mistök,“ sagði Brynjar í útvarpsþættinum Bítinu á Bylgjunni í gær.

Brynjar segist andvígur nýju lögunum. „Ég sagði að þau væru vanhugsuð og sat hjá við afgreiðslu þeirra. Enda óttast ég að þegar það kemur fram þverpóli­tískt frumvarp, þá sé það aldrei vænlegt til árangurs.“


Tengdar fréttir

Útlendingar í iðnnámi hafa minni rétt en nemar í háskóla

Ákveðið hefur verið að vísa víetnamskri konu úr landi eftir tveggja og hálfs árs dvöl og starf á Íslandi. Eftir breytingar á lögum nær dvalarleyfi fyrir námsmenn ekki lengur til iðnnema. Yfirmaður konunnar segir ákvörðunina fráleita.

Ekki ætlunin að undanskilja iðnnema

"Mér þykir einboðið að þetta þurfi að laga. Ég hef skoðað hvort sé hægt að laga þetta með reglugerð en sýnist að ekki verði bætt úr nema með lagabreytingu,“ segir Sigríður Andersen dómsmálaráðherra.

Iðnnám ekki nám í skilningi laga

Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir að það þarfnist viðhorfsbreytingar stjórnvalda gagnvart iðnnámi, en síðustu áramót tóku gildi lagabreytingar sem meta iðnnám ekki nám í lagalegum skilningi.

Gert að yfirgefa landið á næstu fimmtán dögum

Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest úrskurð Útlendingastofnunar um að synja víetnamskri konu, Chuong Le Bui, sem býr á Íslandi og er í matreiðslunámi, um námsmannadvalarleyfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×