Ekki einn einasti fagmenntaður í stórum byggingarverkefnum Sveinn Arnarsson skrifar 24. nóvember 2017 07:00 Útlendingar sem fengið hafa atvinnuleyfi hér á landi á þessu ári er nú þegar orðnir fleiri en árið 2016. Vísir/stefán
Félag iðn- og tæknigreina hefur í skoðunum sínum á fagþekkingu starfsfólks í iðnaði oft á síðustu árum komið að framkvæmdum þar sem enginn er skráður með fagþekkingu. Hilmar Harðarson, formaður félagsins, skrifaði um málið í fréttabréfi félagsins sem kom út nú fyrir skömmu. „FIT hefur þannig mörg dæmi um stór verk þar sem ekki finnst einn einasti fagmenntaður iðnaðarmaður að störfum.“ Einnig segir hann í grein sinni að „fáir kaupendur yrðu væntanlega að íbúðum í stórhýsum ef þeir yrðu upplýstir um að fagmenntaðir iðnaðarmenn hefðu hvergi komið þar nærri.“ Þegar Hilmar er spurður út í þetta segir hann að FIT hafi í skoðunum sínum hingað og þangað fundið þó nokkuð mörg dæmi á síðustu árum þar sem þeir finna ekki nokkurn skráðan iðnaðarmann í stórum sem litlum verkefnum. Gerðar eru þær kröfur að menntaður iðnaðarmaður sé í öllum verkum og innan handar og að meistari sé skrifaður fyrir verki.Hilmar Harðarson, formaður Félags iðn- og tæknigreina.„Já það eru þó nokkur dæmi sem við höfum séð. Okkar verkefni sem ber heitið Einn réttur – ekkert svindl, snýst einmitt um að menn hafi allt á hreinu. Ég get ekki nafngreint fyrirtæki í þessum efnum en þessar upplýsingar eru hjá Vinnumálastofnun og ég skora á að menn skoði hverjir koma erlendis frá og hvernig þeir eru skráðir,“ bætir Hilmar við. Í október gaf Vinnumálastofnun út 164 atvinnuleyfi til útlendinga til að starfa hér á landi. Hefur stofnunin gefið út 1.546 atvinnuleyfi það sem af er árinu 2017 en það eru fleiri útgefin atvinnuleyfi en allt árið 2016. Svo virðist sem fyrirtæki sem fá til sín erlenda starfsmenn skrái þá frekar sem verkamenn en iðnaðarmenn þótt þeir hafi iðnmenntun frá sínu heimalandi. Því veit FIT ekki hvort fyrirtæki séu með iðnaðarmenn á sínum snærum. „Það sem við erum að gagnrýna er að þessi fjöldi erlendra starfsmanna sem koma hingað til landsins eru langflestir skráðir verkamenn. Okkur þykir það einkennilegt. Þá þarf að greiða þeim eftir lágmarkstöxtum verkamanna en ekki iðnaðarmanna. Í raun og veru erum við að gæta hagsmuna skjólstæðinga okkar með því að skoða þessi mál náiið,“ segir Hilmar.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Fleiri fréttir Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Bein útsending: Bjarkey kynnir lagareldisfrumvarpið Neyðast óvænt til að tæma laugina Bein útsending: Þrjátíu ár af EES-samstarfi Drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna til hafnar Sjá meira